Ægir - 15.08.1964, Side 23
ÆGIR
265
SKIP OG VÉLAR
Mýr fiskibátur
Bætzt hefur í íslenzka fiskiflotann nýtt
glæsilegt fiskiskip, m/s AKUREY RE
6, er Hraðfrystistöðin í Reykjavík h.f.
hefur látið smíða hjá Ankerlökken Verft
A/S, Florö í Noregi eftir teikningu
Hjálmars Bárðarsonar, skipaskoðunar-
stjóra.
Skipið er um 250 rúmlestir að stærð
með kælda lest, sérstaka frystilest fyrir
ís og frystigeymslu aftast í þilfarshúsi
fyrir línustampa. — í skipinu er 660 ha.
Lister aðalvél og tvær 62 ha. Listerhjálp-
arvélar. í reynsluferð gekk skipið rúmar
H mílur.
I skipinu er ný gerð af sjálfvirku Sim-
1-ad síldarleitartæki er getur leitað 2500
á hvort borð. Tæki þetta er nýkomið á
Warkaðinn, og er Akurey annað íslenzka
fiskiskipið,. er fær slíkt tæki. Þá er skipið
búið kraftblökk af stærstu gerð, 10 tonna
togvindu, vindu, er hreyfir bómuna og
Vlndu staðsettri á bátaþilfari til þess að
sjósetja og taka upp léttbát. Það er ný-
ftiæli, að hægt er að hita upp íbúðir skip-
Verja með kælivatni aðalvélar auk venju-
legrar upphitunar.
Skipið er með öll nýtízku siglingatæki,
syo sem radar, ljósmiðunarstöð og Arkas-
sjálfstýringu.
Skipið er útbúið til herpinóta-, línu og
þorskanetaveiða._____________________________
Við stærðarákvörðun skal niæla eftir miðlínu
íisks frá trjónu á sporðblökuenda (sporðblöku-
sýlingu).
Allt verð, að undanteknu verði á fiski, er fer
dl mjölvinnslu, miðast við, að selja.ndi afhendi
íiskinn á flutningstæki við veiðiskipshlið.
Verg á fiski til mjölvinnslu miðast við fiskinn
t°minn í þró við verksmiðju.
Verðflokkun samkvæmt framanrituðu byg'g'ist:
** gæðaflokkun ferskfiskeftirlitsins.
Reykjavík, 13. júlí 1964.
Verðlagsráð sjávarútvegsins.
BOKARFREGN
Fishing News Directory and Equipment
Guide 196U.
Útgefandi: Arthur J. Heighway
Publications Limited,
110 Fleet Street. London E. C. 4.
Verð: £1.0.0 -þ burðargjald 2/3 d.
Frá hundruðum hafna, sem liggja
dreifðar við strendur Bretlands, sigla rúm-
lega 10 þúsund fiskibátar með næstum
50 þúsund sjómenn innanborðs, sem
byggja lífsafkomu sína að mestu eða öllu
leyti á fiskveiðum. Þarna má sjá ýmsar
stærðir skipa, allt frá 2850 lesta verk-
smiðjuskipum, sem bæði frysta aflann og
vinna úr honum á hafi úti, og niður í eins
manns humarbáta, sem algengir eru í
smáþorpunum frá hinum norðlægu Shet-
lands-eyjum suður til Ermarsunds.
Allir þessir bátar og skip sjá fiskiðn-
aðinum fyrir hráefni, sem er að verðmæti
mörg hundruð millj. punda á ári sem
neyzluvarningur og veitir vinnu heilum
her af starfsfólki í verksmiðjum, geymslu-
húsum og verzlunum, bæði heima og er-
lendis.
Jafnvel fyrir þá, sem starfa í fiskiðn-
aðinum, er margt honum viðkomandi
óvenju flókið og margbreytilegt. Þess
vegna er handhæg bók með auðveldum
skýringum og upplýsingum einkar kær-
komin, ekki sízt fyrir þá sök, að hún miðl-
ar jafnt fróðleik til þeii*ra, sem utan við
standa eins og hinna, sem að sjálfum
framleiðslustörfunum vinna.
Slík bók er einmitt Fishing News Dir-
ectory and Equipment Guide 1964. Bókin
er tekin saman af starfsmönnum Fishing
News, sem er eitt helzta fiskveiðitímarit
Bretlands, og veitir beztu fáanlegar upp-
lýsingar um allt, er lýtur að brezkum fisk-
iðnaði, þar á meðal skip og stjórntæki
þeirra, veiðarfæri, björgunarútbúnað,
framleiðslu- og markaðsmál, stofnanir og
fyrirtæki o. m. fl.