Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 15.03.1965, Qupperneq 16

Ægir - 15.03.1965, Qupperneq 16
106 ÆGIR Aflatryggingasjóður sjávarútvegsins MEÐALVEIÐIMA GN 1964 I 18. tbl. síðasta árg. Ægis var skýrsla um samþykkt meðalveiðimagn allflestra flokka báta á þorskveiðum fyrir vetrar- vertíð 1964. Hér á eftir fylgja samþykkt- ir á meðalveiðimagni fyrir aðrar vertíðir á þorskveiðum bátaflotans á s.l. ári, á- samt nokkrum flokkum á vetrarvertíð, sem ekki hafa birzt áður. VetrarvertíS 1964. Fyrir skip (þiljuð) undir 50 br. rúml., sem veiðar stunda með línu eingöngu. 1. sv. Vestmannaeyjar. IV. fl. C. Skip 25-50 rúml. 330 lestir ósl. 9. sv. Akranes. IV. fl. E. Skip undir 12 rúml. 122 lestir ósl. 17. sv. ÖnundarfjörSur (Flateyri). IV. fl. C. Skip 25-50 rúml. 515 lestir ósl. 37. sv. HornafjörSur. IV. fl. C. Skip 25-50 rúml. 300 lestir ósl. möguleika til stóraukinnar framleiðslu. S.H. hóf athuganir um nýbyggingu eða breytingar á rekstri verksmiðj u sinnar, en ákvarðanir hafa ekki verið teknar, hvort og með hvaða hætti þær verði gerðar. Samdráttur varð í útflutningi til Sovét- ríkjanna. Nam hann um 4.500 tonnum. Var það einkum freðsíld. Útflutningur til Bretlands var 2.000 tonnum meiri árið 1964, en árið áður. Virðist brezki markaðurinn vera á upp- leið, en hann er mjög háður sveiflum í aflabrögðum brezka fiskveiðiflotans, og því erfitt að spá fyrir um þróun hans. Um brezka markaðinn er það að öðru leyti að segja, að aðstöðumunur milli ís- lands og hinna svonefndu EFTA landa er mikill. — Af íslenzkum fiski verður að greiða 10% toll, en af norskum og dönsk- aðeins 3%. Gerir þetta samkeppnisaðstöðu Islendinga á þessum markaði mjög erf- iða. Árið 1963 var útflutningur til Vestur- Þýzkalands 10.692 tonn, en á árinu 1964 aðeins 3.147 tonn. Stafaði þetta af sam- drætti Þjóðverja á kaupum á freðsíld. Mikið framboð var í Vestur-Þýzkalandi á ferskri Norðursjávarsíld, sem dró úr sölu- möguleikum á viðunandi verði. Markaðshorfur í ár fyrir frystar sjáv- arafurðir eru góðar. Hafa þegar verið gerðir samningar um sölur á verulegu magni til Bandaríkjanna, auk þess magns, sem fer inn í dreifingarkerfi Coldwater. Þá hefur verið samið um sölur til Sovét- ríkjanna og Bretlands. Að síðustu. Takmörk eru fyrir því, hversu hátt er hægt að fara með mark- aðsverðið án þess að sprengja sig út af mörkuðum. Verði ekki lát á þeirri verð- bólguþróun, sem átt hefur sér stað hér- lendis undanfarin ár, stefnir allt í þá átt, að framleiðslan muni stöðvast. Ráðagerð- ir um stórfelldar fjárfestingar í nýjum atvinnugreinum geta riðið íslenzkum framleiðslugreinum að fullu, sé ekki full gát höfð á. Samkeppnin um vinnuaflið er mikil og oft skortur á hæfu fólki við framleiðslustörfin. Sjávarútvegurinn og fiskiðnaðurinn hafa sannað ágæti sitt í tugi ára. Það er því óvarlegt að tefla þess- um undirstöðuatvinnuvegum í hættu og ber að leggja áherzlu á, að efla þær og treysta til enn frekari átaka og afreka.

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.