Ægir

Árgangur

Ægir - 15.05.1968, Blaðsíða 12

Ægir - 15.05.1968, Blaðsíða 12
170 ÆGIR stærð, hrygningu, klak og viðkomu leturhum- ars við ísland. Á ölhun lengdarmælingum á leturhumri nú til dags er stuðzt við skjaldarlengd, þ.e.a.s. lengdin frá augnakrók að miðri afturbrún skjaldar. 1. TAFLA Meðal- og hámarksskjaldarlengd (mm) karldýra fré svœði 146 é tímabilinu maí—ágúst, árin 1962 —1967. Mean and maximum carapace lengths (mm) of males from area 146 during May—August over the years 1962 to 1967. Ar Year 1962 1963 1964 1965 1966 1967 Fjöldi No. in sample 4666 3286 1359 1757 1438 595 Meðalskjaldar- lengd Mean carapace length (mm) 46,5 44,4 44,5 44,0 41,9 41,6 Hámarksskjald- arlengd 79 72 69 70 67 66 Max. carapace length (mm) 1. tafla sýnir meðalskjaldarlengd (mm) karldýra á svæði 146 á tímabilinu maí— ágúst, árin 1962—1967. Hefur meðallengdin farið minnkandi á þessum árum, einkum 1966 og 1967. Mismunur meðallengdar 1962 og 1967 er 5 mm, sem er talsverður þegar smæð dýrsins er höfð í huga. Að sama hætti hefur hámarksskjaldarlengd dýra, sem rann- sökuð hafa verið á þesstun árum, minnkað um 13 mm, eða úr 79 mm í 66 mm. Hefur þannig mikill hluti stærri dýra horfið úr veiðinni eftir margra ára sókn. Oft er hent- ugt að bera saman hámarksstærð, þar eð breytingar á veiðarfærum geta haft áhrif á meðalstærðina. Áhrifa mikilla veiða á stærð leturhumars gætir því mikið á svæði 146, sem og á öðrum svæðum við Suðvesturland, enda þótt upplýsingar þaðan séu af skomara skammti. 2. tafla sýnh' meðalskjaldarlengd (nmi) karldýra við Suðausturland (svæði 152, 153 2. TAFLA Meðal- og hámarksskjaldarlengd (mm) karldýra frá svæðum 152, 153 og 154 á tímabilinu mai—sept- ember, árin 1963—1967. Mean and maximum carapace lengths (mm) of males from areas 152, 153 and 154 during Ma3r—- September over the j'ears 1963 to 1967. Ár Year 1963 1964 1965 1966 1967 Fjöldi No. in sample 3239 2581 2079 4324 2218 Meðalskjaldar- lengd Mean carapace length (mm) 52,6 52,6 52,8 48,3 46,3 Hámarksskjaldar- lengd 76 80 79 81 75 Max. carapace length (mm) og 154) á tímabilinu maí—septemher, árin 1963—1967. Greinileg minnkun á meðal- lengd hefur orðið tvö síðustu árin, þ. e. 1966 og 1967. Þannig er meðalskjaldarlengd karl- dýra 1967 6 mm minni en 1963—1965, enda þótt hún sé enn svipuð og fyrirfannst 1962 á svæði 146. Sennileg orsök þessa er að letur- humarmiðin við Suðausturland voru litið nýtt fram til ársins 1963. Svæði 146 hefur aftur á móti verið aðalveiðisvæðið við Island fra árinu 1960 og eitthvað var þar veitt tvö árin þar á undan, einkum 1959. Mismimur á vaxtarháttum leturhumarsins á þessum tveim svæðum, t. d. vegna ólíkra fæðu- og sjávar- skilyrða, kann einnig að hafa einhver áhrif hér á. 3. tafla sýnir meðalskjaldarlengd karldýra við Suðurland (svæði 169) á tímabilinu mai —ágúst, árin 1963—1967. Á þessu svaeði hefur meðallengd karldýra farið sifellt minnkandi, eða alls um 10 mm frá 1963— 1967. Sama er að segja um hámarksstærðina, sem hefur lækkað um 9 mm. Þess her þó að geta, að fjöldi dýra, sem rannsökuð hafa ver- ið á þessu svæði, er fremur litill. Farið var að nýta þetta svæði í ríkum mæli 1958, er leturhumar var fyrst veiddur svo einhverju næmi hér ríð land.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.