Ægir - 15.05.1968, Page 14
172
ÆGIR
ný mikilsverð leturhumarmið við Suðvestur-
land, sem kann að varpa ljósi á hinn aukna
afla á togtíma þessi ár. Á nýjum miðum veið-
ist alltaf mjög lítið af kvendýrum, sem skýrir
lækkunina, sem varð á hlutfalli kvendýra
þessi ár. Einnig eru alltaf fyxir hendi nokkr-
ar árasveiflur á stofninum, sem eru veiðim-
um óviðkomandi. Athyglisvert er hversu
mikil minnkun er á afla á togtíma árið 1964
eftir hið mikla aflaár 1963. Bendir það til
þess, að hin mikla veiði 1963 hafi verið mik-
ið álag á stofninn.
Á. 3. mynd er sýndur afli á togtíma (kg)
á timahilinu maí—septemher, árin 1963—
1967, og hlutfall kvendýra í aflanum á sama
timabili við Suðausturland. Breytingar á afla
á togtíma voru hér fremur litlar fram til
ársins 1967, er lækkun varð úr 78 kg 1966 í
53 kg. Talan fyrir aflamagn á togtíma 1963
er lág og vart sambærileg við hinar, þar eð
engin veiði var það ár í maí, sem að öllu
jöfnu er mjög góður veiðimánuður. Aukning
á hlutfalli kvendýra á þessum árum er mun
minni en við Suðvesturland, eða frá 9% 1963
í 17% 1967.
3. mynd. Árasveiflur á afla á togtíma og hlutfalli
kvendýra í aflanum á timabilinu maí—september ár-
in 1963—1967 við Suðausturland.
Annual variations in catch per trawling hour and pro-
portion of females in the catch during May—Septem-
her over the years 1963—1967 at Southeast Iceland.
Upplýsingar frá svæði 169 eru af heldur
skornum skammti hvað viðvíkur hlutfalli
kvendýra í aflanum. Frá 1964—-1967 hefur
þó hlutfall þeirra í aflanum aukizt úr 20%
í 32%, samfara minnkun á afla úr 56 kg í
33 kg á togtíma.
Mikil sókn á helztu veiðisvæðunum hefur
þannig haft í för með sér lækkun á meðal-
stærð karldýra ásamt minnkun á afla á tog-
tíma og aukningu á hlutfalli kvendýra. Eink-
um er þetta áberandi við Suðvestur- og Suð-
urland, þar sem veiðar hafa verið stundaðar
að ráði frá þvi fyrir 1960. Við Suðausturland
eru áhrif sóknarinnar minni, enda voru veið-
ar þar ekki stundaðar svo neinu næmi fyrir
1963. Niðurstöður ársins 1967 benda þó til
þess, að sömu áhrifa sé farið að gæta hér
einnig, þó í minna mæli sé.
Ekki er eingöngu um árasveiflur á afla á
togtíma og hlutfalli kvendýra í aflanum að
ræða. Greinilegar sveiflur eiga sér einnig stað
milli mánaða á ári hverju.
4. mynd sýnir mánaðasveiflur, sem átt hafa
4. mynd. Mánaðasveiflur á afla á togtíma og hlut-
falli kvendýra í aflanum á tímabilinu maí—ágúst á
samanteknum árunum 1962—1967 við Suðvesturland.
Monthly variations in catch per trawling hour and
proportion of females in the catch over the period
May to August during the years 1962—1967 at South-
west Iceland.