Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 15.05.1968, Qupperneq 23

Ægir - 15.05.1968, Qupperneq 23
ÆGIR 181 6 til 7 ár me'ð þeim afleiðingum, að ísrek hefur aukizt og sjávarhiti lækkað að mikl- um mun, svo að þörungagróður hefur minnkað og sjórinn orðið snauður af rauð- átu, kjörátu síldarinnar, fyrir Norðurlandi og víðar þar sem gnótt var átu vikum og mánuðum saman á grunnslóðum að sumar- lagi. S. 1. sumar virtist Austur-fslands straumurinn, sem liggur beint í suður frá Jan Mayen, vera miklu sterkari og ennþá kaldari en venjulega, og áhrifa hans gæta á breiðara og stærra hafsvæði en áður. Þegar norska síldin rakst á þenna mikla sjávarkulda eins og kínverskan múr á göngu sinni til vesturs að landinu, sneri hún frá og gekk norðaustur á bóginn, eins °g fyrr segir. Nokkur hluti norsku síldarinnar var við Fsereyjar í vetur og er hugsanlegt að eitt- hvað af þeirri síld gangi vestan hins kalda Austur-fslandsstraums upp undir Aust- firði sunnanverða, þótt það yrði ekki í fyrra. Að öðru leyti eru horfur á því að í sum- ar muni síldargöngurnar halda sig langt lmdan landi, ekki síður en s. 1. sumar, og óvissa um veiðarnar meiri en nokkurntíma áður. Síldarflutningaskipin m/s Haförninn og e./s Síldin munu halda uppi síldarflutning- um af f jarlægum miðum eins og í fyrra og standa Síldarverksmiðjur ríkisins í samn- ingum um að leigja þriðja stóra tankskip- ið til flutninganna. Þá hafa verið sett bráðabirgðalög um að Síldarútvegsnefnd beiti sér fyrir flutning- um á saltsíld frá síldveiðiskipunum á fjar- lægum miðum og flutningi á tunnum og öðrum birgðum til skipanna. Er ætlunin að leigja allt að fimm skip til þessara flutninga. Með þessu móti er ætlunin að stuðla að því, að veiðiskipin geti í ríkari mæli en áður saltáð síld um borð, jafnhliða því sem stunduð sé síldveiði til bræðslu, og bræðslu- síldinni umskipað í flutningaskip á mið- unum. Þótt verð á bræðslusíldarafurðunum sé ennþá mjög lágt, eru vonir til þess að þær ráðstafanir, sem nú eru í deiglunni, verði til þess að bæta afgreiðsluskilyrði síldveiði- flotans á komandi vertíð svo verulega, að vænta megi bættrar afkomu þeirra, sem síldveiðar stunda, miðað við s. 1. ár, þrátt fyrir það að síldargöngurnar kunni að halda sig að mestu leyti á fjarlægum mið- um eins og þá. r r - TITAN-SJALFSTYRINGAR „AUTOPILOT" fyrir fiskiskip og farmskip Sðluumboð: ryAja sór alls stað'ar til rúms, jafnt hérlcndis sem erlcndis. Mitrg íslenzk skip eru |tegar út- búin me« THRIGE TRAVSISTOIl- S.IÁI.FSTVRIAGIJ. — TIIRIGE- S.IÁEESTÝRIXGIIV er viðnr- kennd al I.Ioyd’s og Rnrean Veritas. Laugavegi 15, Simi 1-16-20 Allir sjómenn, eldri og yngri, [Durfa að eignast bókina ENSK LESTRARBÓK handa sjómönnum Þar er að finna ensk heiti ó öllum hlutum ó skipi og í dokk. Auk þess er bókin góður leiðarvísir fyrir sjómenn í erlendum höfnum. — Kostar 40 kr. í sterku bandi. Bókaverzlun ísafoldar.

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.