Ægir - 01.02.1971, Page 10
24
ÆGIR
Stöðugur vöxtur er í útflutningi til
Bandaríkjanna, sem á síðustu 4 árum hef-
ur aukizt um 167%, eins og eftirfarandi
yfirlit ber með sér:
1967 21.394 smál.
1968 34.123 —
1969 47.006 —
1970 57.226 —
Hinar nýju fiskiðnaðarverksmiðjur SH
og SÍS í Bandaríkjunum eiga án nokkurs
vafa ríkan þátt í, hversu vel hefur til tek-
izt að selja íslenzkar sjávarafurðir á þess-
um markaði. Hlutdeild íslendinga í fram-
leiðslu og sölu verksmiðj uframleiddra fisk-
rétta hefur aukizt á síðustu árum, jafn-
framt aukinni heildarneyzlu á markaðn-
um.
Skjót viðbrögð Islendinga í framleiðslu
og sölu fiskflaka í „fish & chips“-búðirnar,
sem hafa verið að rísa upp með miklum
hraða, hafa einnig ráðið miklu.
Á s.l. ári varð verðþróunin á bandaríska
markaðnum með þeim hætti, að telja má
til eindæma. Miklar verðhækkanir urðu á
flestum afurðategundum, sérstaklega á
fiskblokkum. Hafði það mjög örvandi
áhrif á framleiðslu hraðfrystra sjávar-
afurða. Verðlag á þorskblokk var um síð-
ustu áramót komið í 39—40 cent per pund-
ið, en hafði verið 25—26 cent í ársbyrjun.
Helmingur verðhækkana frá viðmiðunar-
verðum fer í Verðjöfnunarsjóð fiskiðnað-
arins og skal ekki ráðstafað nema verð-
lækkanir eigi sér stað.
Um framtíðarþróun þessara mála er
erfitt að segja. Vart er við því að búast, að
verðhækkanir verði í Bandaríkjunum á
þessu ári. Hvort unnt verður að halda nú-
verandi verðlagi, skal engu um spáð. Mikil
áherzla verður lögð á að halda hinni góðu
stöðu, sem tryggð hefur verið í Bandaríkj-
unum og styrkja þann grundvöll, sem þar
hefur verið lagður.
Mikilsvert er að vetrarvertíð verði góð
og að sem minnstar truflanir verði á
rekstri hraðfrystihúsanna. Haldist jafn-
vægi í efnahagsmálum innanlands og á
verðlagi afurðanna erlendis, er þess að
vænta, að árið 1971 geti orðið hraðfrysti-
húsunum hagstætt.
Þorskveiði Norðmanna 1971
Heildarafli Hert Saltað ísað Fryst flök Meðalalýsi Söltuð hrogn
smál. smál. smál. smál. smál. smál. smál.
1971 23/1 11.068 640 6.444 915 3.069 5.470 1.225
1970 31/1 14.831 1.175 7.396 1.483 4.777 6.867 1.460
THE BELFAST ROPEWORK COIUPAIMY LTD., Belfast,
Morður-lrlandi.
Framleiða allskonar kaðla, botnvörpugam, netja-
gam, seglgam, bindigam, fiskilínur, botnvörpur
o. fl., úr manillu, sísal, grasi, mjúkum hampi, Teryl-
ene, Nylon og öðrum þekktum gerfiefnum.
BELFAST-verksmiðjan er stærsta fyrirtæki heims-
ins í sinni grein, og hefur selt framleiðsluvörur sín-
ar til íslands í áratugi.
Einkaumboðsmenn: V. Sigurðsson & Snæbjörasson h. f.