Ægir - 01.06.1971, Side 13
ÆGIR
131
báta. Þrír vélaframleiðendur sýndu þarna
nyja gerð véla í fyrsta skipti, en fyrir-
tækin voru Garner (Ný 150 hk vél), Bukh
(aý.iar 10 og 20 hk vél) og Volvo Penta
(ný 270 hk) og vöktu þessar vélar all-
mikla athygli.
Eins og áður er sagt, er ekki hægt hér í
smágreinarkorni að lýsa svo vel sé öllum
þeim tækjum og vélum, sem sýnd voru,
enda verður það ekki gert hér, vafalaust
n^nnu umboðsmenn þcssara véla og tækja
kynna þau fyrir mönnum síðar hér í Ægi,
eða öðrum blöðum.
Hér á eftir verður lítillega minnzt á
nokkrar nýjungar, sem vafalaust eiga
eftir að sjást í notkun hér á landi.
Sharples Vibroscreen
Tæki þetta er einskonar „skilvinda" og
nú þegar í notkun víða um heim. Eng-
inn vafi er á að tæki þetta ætti að vera í
notkun í öllum frystihúsum landsins. Eins
°& alkunnugt er, fellur allverulegt magn af
aJlskonar fisktægjum og úrgangi á gólf
Hskiðjuveranna og þaðan um niðurföll og
1 sjó fram, og er þar aðalfæða svartbaks
ýmissa fisktegunda. Hafa menn hug-
ieitt hve mikið hráefni fer þannig til spill-
ls? Með tæki þessu væri hægt að aðskilja
a|lan fiskúrgang og nýta síðar til mjöl-
vinnslu eða á annan hátt. Það eru til ýmsar
stærðir og gerðir af tæki þessu, og sér-
nver framleiðandi ætti að geta fengið hent-
uSa stærð fyrir sitt fyrirtæki.
síldartunna
Hollendingar (Koninklijke Emballage
Industrie, Van Leer N. V.) sýndu þarna
nýja gerð af plastsíldartunnum. Tunna
þessi vakti mikla athygli á sýningunni og
gerðu framleiðendur sér miklar vonir um
sölu eftir þeim fyrirspurnum og sölusamn-
ingum, er gerðir voru á sýningunni. Tunna
þessi er sögð sérlega sterk og endingargóð
og ætti því að henta okkur vel hér til
söltunar á síld, grásleppuhrognum o. fl.
Ný perö af vUistkúlum
Dansk fyrirtæki (Panther Plast) sýndi
nýja gerð af plastkúlum til notkunar á
troll og net. Eins og myndin ber með sér
er kúla þessi þannig að mjög fljótlegt er
að skrúfa hana á höfuðlínu
eða net. Hinir dönsku
framleiðendur hafa einka-
leyfi á framleiðslu þessari
og gera þeir sér vonir um
mikla sölu. Kúla þessi er
sögð hafa reynzt mjög vel
allstaðar þar sem hún hef-
ur verið reynd og er mynd
af henni neðst á næstu
síðu