Ægir - 15.10.1972, Side 8
330
Æ GIR
Aukið eftirlit með möskvasfærð.
Á árinu var mjög aukið eftirlit af hálfu
Landhelgisgæzlunnar með að möskvastærð-
arákvæðum væri hlýtt, svo og eftirlit með
þorska- og ýsunetum. Segja má að eftirlit
þetta hafi leitt til þess að skipstjórnarmenn
séu betur vakandi varðandi gildandi regl-
ur en áður, enda fer þeim fækkandi er
kærðir hafa verið fyrir brot á áðurnefnd-
um reglum.
Bann við laxveiðum í sjó.
Á ársfundi Norðaustur-Atlantshafs-
fiskveiðinefndarinnar (NEAFC) í maí
1971 varð samkomulag um bann við lax-
veiðum á tilteknu svæði undan Noregs-
ströndum til þess að koma í veg fyrir út-
þenslu veiðanna. Á fundinum lögðu Bretar
til að lokað yrði svæði undan Bretlands-
og írlandsströndum og var það samþykkt.
Samkomulag um takmörkun á veiði norsk-
íslenzku síldarstofnanna.
Samkomulag varð milli Islands, Noregs
og Sovétríkjanna um takmörkun á veiði
norsk-íslenzku síldarstofnanna á árinu
1971, sem veiddiy eru á skýrslusvæði Al-
þjóðahafrannsóknarráðsins Nr. I, II og Vb
(svæðið norðan 62 n. br. og austan 11. v.
lgd. og við Færeyjar). Áður hefur verið
gerð grein fyrir þessum takmörkunum í
Ægi (22. tbl., 1970).
Reglugerð um 'veiðar á ICNAF-svæðinu
1971.
Eftirfarandi reglugerðir tóku gildi á
ICNAF-svæðinu á árinu 1971, til viðbótar
þeim, sem fyrir voru eða í framhaldi af
þeim.
Lax:
Fjöldi og afli einstaki’a skipa má ekki
fara fram úr veiði ársins 1969. Úthafs-
veiðar voru bannaðar fyrir 31. júlí og eftir
30. nóv. Bannað var að nota togvörpur.
Ennfremur var bannað að nota net úr eins
þáttar garni („monofilament") og toglín-
ur (,,troll“)'.
Reglugerð þessi gekk í gildi 8. marz
1971 fyrir öll aðildarlöndin nema Rúss-
land.
Yellowtail flounder:
Á undirsvæði 5 (Subarea 5) skulu gilda
eftirfarandi ákvæði fyrir árið 1971: Aust-
an 69° v. 1. má hámarksaflamagn vera
16.000 lestir en vestan þessa lengdarbaugs
13.000 lestir. Ennfremur skulu fyrir þessa
tegund gilda sömu ákvæði um möskvastærð
og fyrir voru á svæðinu fyrir þorsk og ýsu.
Þessi reglugerð gekk í gildi 7. jan. 1971.
Möskvastærð:
Ýmsar breytingar á möskvastærðar-
ákvæðum tóku gildi á árinu.
Á undirsvæði 2 (Subarea 2) var tekin
upp 130 mm möskvastærð. Þessi ákvæði
tóku gildi 7. jan. 1971 fyrir öll löndin nema
Pólland, Portúgal og Spán, en fyrir þau
skal þessi reglugerð taka gildi 1. jan. 1972.
Á undirsvæði 3 (Subarea 3) tóku sams-
konar ákvæði gildi (130 mm möskvastærð)
15. apríl 1971 fyrir öll löndin nema þau
sömu og að ofan greinir og Kanada. Fyrir
Pólland tekur þessi regla þó gildi 1. jan.
1972.
Selur:
Selveiðar á svæðinu skulu takmarkast
við 245.000 dýr og og veiðitímabil ákveðið
12. marz til 24. apríl 1971. Ákvæðin tóku
gildi 7. jan. 1971.
Eftirlit með reglum:
Reglur um sameiginlegt eftirlit með að
fiskveiðiákvæðum verði framfylgt, var
komið á. Útnefndir eftirlitsmenn aðildar-
landanna mega fara um borð í veiðiskip
hvers annars til eftirlits.
Ákvæði þessi gengu í gildi 7. jan. 1971
og komu til framkvæmda 1. júlí 1971 og
gilda fyrir öll aðildarlöndin nema hvað
Rússland, Pólland og Rúmenía eru undan-
þegin athugunum á afla og veiðarfærum
neðan dekks.
Ýmsar breytingar voru framkvæmdar a
veiðitakmörkunum, t. d. á ýsu í krafti eldri
heimilda án þess að til nýrra heimildar-
ákvæða kæmi.