Ægir - 15.10.1972, Qupperneq 17
ÆGIR
339
TOGARARNIR 1971
Samkvæmt skilgreiningu, sem öðlast hef-
ur hefð, er togari skip, sem veiðir með tog-
vörpu og er meira en 500 brl. að stærð.
Þótt, með tilkomu nýrra skipa — sérsmíð-
aðra til togveiða — sé orðið tímabært að
taka þessa skilgreiningu til endurskoðunar,
og er það sem hér fer á eftir miðað við það.
Sami fjöldi togara, 22, var á veiðum
mestan hluta ársins 1971 og var á árinu
1970, en í lok nóvember var Marz RE 261
lagt, að öllum líkindum fyrir fullt og allt.
Verða það væntalega örlög fleiri skipa af
þessari kynslóð í næstu framtíð.
Miðað við undanfarin ár varð 1971 óhag-
stætt togaraútgerðinni: Aflinn dróst veru-
lega saman, þrátt fyrir að mun meira væri
um heimalandanir, en að öðru jöfnu gefa
þeir túrar, sem landað er úr hér heima
talsvert meira í afla, en ef landað er er-
lendis, auk þess, sem talsverður tími vinnst
uieð því að landa hérlendis. í öðru lagi varð
samdrátturinn í löndunum samtals tiltölu-
lega meiri samdrætti í aflaverðmæti en
orðið hefði ef svipuð skipting hefði haldizt
milli heimalandana og landana erlendis. í
þessu sambandi ber þó að hafa í huga þá
LANDAÐUR AFLI TOGARA
breytingu, sem varð á verðhlutföllum milli
heimamarkaðar og erlendra markaða, sem
varð þeim síðartöldu í óhag. Ef tillit er
tekið til áhrifa vegna breytinga á gengi
íslenzku krónunnar gagnvart marki og
pundi, var meðalverðhækkun á ísfiskmörk-
uðum erlendis 24,7 % sem er talsvert undir
þeirri hækkun, sem varð hérlendis. Vísast
í því sambandi til kaflans um fiskverð og
samninga. Annað, sem áhrif hafði var verk-
fall yfirmanna frá janúar til marz, tími,
sem talsvert er um siglingar að jafnaði og
lágt sumarverð hélzt óvenjulengi frameftir
í Þýzkalandi.
í heild nam samdráttur í afla rúmum
9 þús. lestum eða 11,4% miðað við 1970.
Samdráttur í aflaverðmæti nam í heild
rúmum 77 millj. kr. eða 8,9%.
Ekki urðu á árinu verulegar breytingar
á miðavali togaranna, en þó var heldur
meira sótt á Grænland en á árinu 1970 og
jókst afli þaðan nokkuð. Einn togari, Maí,
reyndi við Nýfundnaland og sótti þangað
einn túr. Virðist það ekki hafa gefið ár-
angur sem skyldi því ekki voru farnir fleiri
túrar þangað.
ÁRIÐ 1971 EFTIR LÖNDUNARMÁNUÐUM
Miðað við sl. fisk m/haus, nema karfinn er veginn ósl. (22 skip).
Heimalandanir \ Landanir erlendis I Samtals
^ánuðir
Veiði Afli Tog- Togtími Veiði Afli Tog- Togtími | Veiði Afli Tog- Togtími Veiði á togtíma
— ferðir kg. fjðldi kl.st. ferðir kg. fjöldi kl.st. \ ferðir kg fjöldi klst. 1971 1970 1969
í?núar þebrúar*) Marz Ápríl Maí Júní Júií Ágúst' ''' 7 725,7 435 850 20 2.751,1 1.816 3.541 27 3.476,8 2.251 4.391 792 830 862
— — 1 289 3 185 381 1 289,3 185 381 759 1.052 1.090
26 3.649,0 1.924 3.831 3 445,5 244 496 29 4.094,5 2.168 4.327 946 1.334 1.103
28 5.498,1 2.341 4.465 8 1.441,1 917 1.697 36 6.939,2 3.258 6.162 1.126 1.610 1.588
34 7.206,1 2.946 5.183 3 612,9 315 614 37 7.819,0 3.261 5.797 1.349 1.440 1.723
32 5.971,9 2.997 5.165 6 845,0 607 1.048 38 6.816,9 3.604 6.213 1.097 1.285 1.610
35 6.992,2 3.738 6.527 1 138,6 64 99 36 7.130,8 3.802 6.626 1.076 1.434 1.346
37 7.155,2 4.039 6.925 2 263,1 225 375 39 7.418,3 4.264 7.300 1.016 1.092 1.147
nif.lí:rnber • • • Október {^úvember !! 37 6.335,6 3.670 6.458 2 239,2 182 317 39 6.574,8 3.852 6.775 970 944 931
26 3.543,0 2.433 4.343 7 1.039,7 751 1.275 33 4.582,7 3.184 5.618 816 813 941
14 1.617,2 1.074 2.212 16 2.414,6 1.411 2.597 30 4.031,8 2.485 4.809 838 957 996
Csember 15 1.281,3 932 1.886 12 1.797,2 1.071 2.121 27 3.078,5 2.003 4.007 768 885 951
Samtals ' Verkfall. 291 49.975,3 26.529 47.845 81 2.277,3 7.788 14.561 372 62.252,6 34.317 62.406 998 1.163 1.193
Árið 1970 eru heimalandanir 187, afli 39.573,5 lestir Árið 1969 eru heimalandanir 249, afli 46.852,6 lestir
■— — — landanir erlendis 185, — 30.159,6 — — — — landanir erlendis 158, — 26.340,2 —