Ægir - 15.10.1972, Side 30
352
ÆGIR
SKIPASTÓLLIIVIV 1971
Að venju verður hér gerð grein fyrir
öllum breytingum, sem hafa orðið á fiski-
skipastólnum á s. 1. ári og er þá miðað
við áramót, eins og venja hefur verið. Það
skal tekið fram að yfirlit það er birtist
í Sjómannaalmanakinu er miðað við 15.
desember 1971. Til fróðleiks er hér birt
skrá yfir öll skip er bættust við skipastól-
inn á s. 1. ári, er fjöldi þeirra sem hér segir.
67 skip skrásett á árinu samt. 9.426 br. rúml.
21 skip tekin af skipaskrá samt. 5.565 br. rúml.
Fjölgun 46 skip samt. 3.861 br. rúml.
Samkvæmt þeim upplýsingum er Fiski-
félagið hefur um stærð ísl. fiskiskipastóls-
ins í árslok 1971 er talið að hann hafi verið
eins og meðfylgjandi tafla ber með sér og
til samanburðar flotans eins og hann var
talinn í árslok 1970.
1970 1971
Br. Br.
Fjöldi rúml. Fjöldi rúml.
1. Hvalveiðiskip 4 1.973 4 1.973
2. Togarar 23 16.837 22 15.993
3. Önnur fiskiskip 742 59.734 791 61.052
Samtals 769 78.544 817 79.018
4. Opnir vélbátar 1.094 3.350 1.034 3.246
Samtals 1.863 81.894 1.851 82.364
Rétt er að geta þess í sambandi við
brúttó rúmlesta stærð fiskiskipaflotans, að
erfitt er um samanburð milli ára, því mikl-
ar endurmælingar skipa, samkvæmt hinum
nýju mælingareglum hafa átt sér stað á
árinu eða 50 skip sem hafa verið mæld
niður og 5 sem hafa verið mæld upp. Til
samanburðar voru 66 skip endurmæld árið
1970 og 89 endurmæld 1969.
Til fróðleiks má nefna að þau skip er
byggð voru í A-Þýzkalandi 1965 mældust
þá samkvæmt eldri reglunum 264 br. rúml.
en endurmæld samkvæmt hinum nýju regl-
um mælast þau um 208 br. rúmlestir.
Öll nýsmíði svo og skip sem skrásett
eru hér í fyrsta sinn eru mæld samkvæmt
nýju reglunum.
I Sjómannaalmanaki Fiskifélagsins eru
öll skip sem mæld hafa verið niður auð-
kennd með stjörnu aftan við br. rúml.
stærð þeirra.
Eins og fram kom í meðfylgjandi skrá
yfir skip er bættust við ísl. flotann á síð-
asta ári svo og í skrá yfir skip er tekin
voru af skrá af ýmsum orsökum, verður
fjölgunin í ísl. fiskiskipastólnum þessi:
1. Skip smíðuð innanlands 46
2. Skip keypt erlendis frá 8
3. Skip endurbyggð og dekkuð 9
Samtals 63
4. Fiskiskip tekin af skipaskrá 15
fjölgun 48
Auk þessa bættist eitt skip við fiski-
skipastólinn en það var björgunarskipið
m/b Elding MB-14 sem var breytt í fiski-
skip á árinu og gefið nafnið Arnarboi'g
GK-75.
Samkvæmt þessu hefur heildarfjölgunin
í fiskiskipaflotanum orðið 49 skip samtals
1.318 br. rúmlestir og er þar meðalstærð
skipanna um 27 br. rúmlestir.
Um síðustu áramót var vitað um 12
fiskiskip er ekki stunduðu veiðar á árinu
1971. Nokkur þeirra voru í viðgerð, en
önnur munu varla róa til fiskjar meir, og
munu því bráðlega verða tekin af skipn-
skrá.
Til fróðleiks birtist hér einnig tafln
(1972) þar sem fiskiskipastólnum, öðruni
en togurum, hvalbátum og opnum vélbát-
um, hefur verið raðað eftir ýmsum stævð-
arflokkum og til samanburðar töflur fyrn'
árin 1966 og 1971.