Ægir - 15.10.1972, Blaðsíða 36
358
ÆGIR
ÁBYRGÐ Á LÁNUM VEGNA
SKUTTOGARAKAUPA.
L. nr. 28 12 maí 1972 um heimild fyrir ríkis-
stjómina til aS veita sjálfsskuldarábyrgð til kaupa
á skuttogurum.
Ríkisstjórninni er heimilað að veita slíka ábyrgð
fyrir allt að 80% af kaupverði skuttogara.
ÚTFLUTNINGSGJALD.
L. nr. 17 4. maí 1972 um breyting á l. nr. U
28. febr. 1986, um útflutningsgjald á sjávaraf-
urðum, (sbr. nokkrar síðari breytingar).
Magngjald af nokkrum frystum, hertum og
söltuðum fiskafurðum er hækkað um kr. 1.900,00
á tonn í kr. 2.300,00 á tonn.
Skiptingu tekna af útflutningsgjaldi er nokkuð
breytt og verður nú þessi:
Til Tryggingasjóðs
fiskiskipa 82,0% (áður 80,0%)
Til Fiskveiðasjóðs
íslands 11,4% (áður 12,7%)
Til Fiskimálasjóðs 3,1% ( - 3,5%)
Til byggingar haf- og
fiskirannsóknarskips . . . 1,8% ( — 2,0%)
Til byggingar rannsókn-
arstofnana sjávai-útvegs 0,7% ( - 0,8%)
Til Landssamb. ísl.
útvegsmanna 0,5% ( — 0,5%)
Til samtaka sjómanna .. 0,5% ( - 0,5%)
VERÐJÖFNUNARSJÓÐUR
FISKIÐNAÐARINS.
L. nr. 18 4. apríl 1972 um breyting á lögum nr.
72 28 maí 1969 um Verðjöfnunarsjóð fiskiðnað-
arins.
Ákveðið er, að verði breyting á gengi íslenzkrar
krónu. skal fé sjóðsins umreiknað til hækkunar
eða lækkunar, eftir því sem við á, í samræmi við
gengisbreytinguna að því leyti sem það kann að
vera ávaxtað í ísl. krónum, (en heimilt er að
ávaxta fé sjóðsins hvort heldur er í innlendri eða
erlendri mynt).
STÝRIMANNASKÓLINN 1 REYKJAVÍK.
L. nr. 22 3. maí 1972 um Stýrimannaskólann i
Reykjavík.1
Sett eru ný heildarlög um skólann í stað 1. nr.
84/1966. Til nýmæla telst það m. a., að í 7 manna
skólanefnd, sem menntamálaráðuneytið skipar, til-
nefna Farmanna- og fiskimannasamband íslands
tvo menn, Landssamband ísl. útvegsmanna einn
mann og Vinnuveitendasamband Islands einn
mann. Tveir menn verða skipaðir eftir tilnefn-
ingu nemenda.
Þá eru í lögunum ákvæði um, að skólastjóri
láti halda námskeið til að standast fiskimanna-
próf 1. stigs, þegar næg þátttaka fæst, á Akur-
eyri, Isafirði og í Neskaupstað og á öðrum stöð-
um að fengnu samþykki menntamálaráðuneytis-
ins.
Gagnfræðapróf er nú meðal inntökuskilyrða, þó
er heimilt að halda undirbúningsnámskeið fyrir
þá, sem ekki hafa lokið gagnfræðaprófi.
SÖLUSTOFNUN LAGMETISIÐNAÐARINS.
L. nr. 48 26. maí 1972 um Sölustofnun lagmetis-
iðnaðarins.
Aðilar eru ríkið og atvinnurekendur í lagmetis-
iðnaði. Aðild atvinnurekenda er frjáls.
Hlutverk stofnunarinnar er að efla á skipu-
legan hátt framleiðslu og útflutning á niðursoðn-
um og niðurlögðum sjávarafurðum og annast inn-
flutning á rekstrarvörum, ef þörf krefur.
Stjórn skipa 5 menn, 2 tilnefndir af aðalfundi
fulltrúaráðs 1 tilnefndur af fjármálaráðuneyti,
1 af viðskiptaráðuneyti og 1 af iðnaðarráðherra,
sem jafnframt er stjórnarformaður. Að 5 árum
liðnum tilnefnir fulltrúaráð 3 stjórnarmenn, en
ráðherra skipar að auki tvo.
EFTIRLIT MEÐ SKIPUM.
L. nr. 57 29. maí 1972 um breyting á l. nr. 52
12. maí 1970,\um eftirlit með skipum.
Bannað er að henda hvers konar netum, vörpum
eða öðrum veiðarfærum eða hlutum úr þeim í
sjó. (Þetta er nýmæli).
SIGLINGALÖG — ÁBYRGÐ
ÚTGERÐARMANNA.
L. nr. 57 29. maí '1972 um breyting á l. nr. 52
lögum nr. 66/1963 isbr. lög nr. 1U/1968.
Felld er niður takmörkuð ábyrgð útgerðar-
manns á ki-öfum vegna lífs- eða líkamstjóns skip-
verja, leiðsögumanna eða annarra manna, sem
ráðnir eru hjá útgerðarmanni, enda hafi slys
borið að höndum, er hlutaðeigandi var staddur
á skipi eða vann í þágu þess. Útgerðarmaður ber
ábyrgð á kröfum þessum, þótt slysið verði ekki
rakið til bilunar á tækjum eða ónógra öryggts~
ráðstafana né lieldur vanrækslu eða yfirsjónar
þeirra, er starfa í þágu skips. Vítavert gáleysi
getur þó leitt til niðurfellingar eða lækkuna/r
bóta.
VITGJALD.
L. nr. 61 29. maí 1971 um vitagjald.
Greiða skal vitagjald fyrir hvert skip stærra
en 5 brúttórúmlestir, sem tekur höfn á íslandi,
10 krónur af hverri brúttórúmlest. Gjaldið er
greitt í hverri ferð, nema um sé að ræða skip,
sem aðeins eru höfð í innanlandssiglingum eða
eru fiskiskip. Þau greiða vitagjald einu sinni a
ári, þó aldrei minna en 100 krónur,- Gjaldi þessu
er varið til smíði og viðhalds vitakerfis landsins.