Ægir - 15.11.1973, Page 5
EFNISYFIRLIT:
RIT FISKIFÉLAGS ÍSLANDS
6 6. ÁRG. 20. TBL. 15. NÓV. 1973
Fiskiþing 385
Frá 32. Fiskiþingi 386
Ályktanir 32. Fiskiþings 388
Útgerð og aflabrögð 393
Bráðabirgðasamkomu-
lagið við Breta 398
Ný fiskiskip:
Dagstjarnan KE 9 403
ÚTGEFANDI:
FISKIFÉLAG (SLANDS
HÖFN, INGÓLFSSTRÆTI
SÍMI 10500
RITSTJÓRN:
MÁR ELlSSON (ábm.)
JÓNASBLÖNDAL
AUGLÝSINGAR:
GUÐMUNDUR
INGIMARSSON
UMBROT:
GlSLI ÓLAFSSON
PRENTUN:
(SAFOLD
ÁSKRIFTARVERÐ
600. KR.
ÁRGANGURINN
KEMUR ÚT
HÁLFSMÁNAÐARLEGA
Fiskiþing
32. Fiskiþingi er lokið. Þetta
þing markar á margan hátt
tímamót og er fyrsta reglulega
þingið, sem situr eftir nýjum
lögum Fiskifélagsins, sem
samþykkt voru á seinasta ári.
Mikilvægasta breytingin er sú,
að á þessu þingi sátu fulltrúar
hagsmunasamtaka sjávarút-
vegsins. Má því ætla, að þær
tillögur, sem frá þinginu komu
séu betur í samræmi við heild-
arhagsmuni og skoðanir sjáv-
arútvegsmanna, enda er það
megin tilgangurinn.
Þá hefur þingtímanum verið
breytt þannig, að nú kemur
þingið saman að hausti til í
stað vetrar áður. Eins kemur
þingið nú saman árlega í stað
þess að áður kom það saman
á tveggja ára fresti.
Allar þessar breytingar
miða að því, að sjávarútvegur-
inn geti eignast sameiginlegan
málsvara og vettvang, þar sem
unnt er að taka sameiginleg
hagsmunamál til umræðu og
móta hugmyndir um hvernig
menn vilja að staðið sé að mál-
um. Er ekki sízt brýn þörf
fyrir þetta nú, þegar fram-
vinda tímanna er í átt til sí-
aukinna afskipta opinberra
aðlia af atvinnuvegunum.
í þessu efni stendur sjávar-
útvegurinn hallari fæti en
margir aðrir atvinnuvegir,
enda flóknari að uppbyggingu,
innbyrðis samskipti meiri og
oft á tíðum grunnt á andstæð-
um hagsmunum, sem leiða
vilja til árekstra, en einmitt
þessvegna er meiri ástæða til
að hann komi sér saman.
í þessu og næstu blöðum
mun Ægir birta helstu tillög-
ur 32. Fiskiþings, sem við
væntum að leiði til nokkurs
ábata fyrir atvinnuveginn.