Ægir

Árgangur

Ægir - 15.02.1974, Blaðsíða 6

Ægir - 15.02.1974, Blaðsíða 6
Ásgeir Jakobsson: Sjóvinnukennsla — sögulegt ágrip Inngangur. Þegar ljóst varð, að fyrir dyrum stæði að endurnýja togaraflota landsmanna með nýrri gerð skipa og jafnframt fjölga togurum, varð kunnugum mönnum um leið ljóst, að endur- hæfingar var þörf bæði í skipstjóra- og vél- stjórastéttinni. Aðstaðan við veiðamar var að ýmsu leyti með öðrum hætti en verið hafði á hinum hefðbundnu togskipum og togara- skipstjórar þurftu að aðhæfa sig þessum breyttu aðstæðum. Sama átti við um vélstjórn- armennina, þar sem vélbúnaður og tæki nýju skipanna var um margt ólíkur því, sem gerð- ist á þeim eldri og hefðbundnu. Fiskifélagið hafði nokkra forgöngu í þessu endurhæfingarstarfi. Það voru kallaðir saman haustið 1971 nokkrir skipstjórar og haldnir með þeim tveir fundir, sem Þorsteinn Gísla- son skipstj. stjórnaði og síðar komu saman nokkrir framámenn vélstjóra í sama augna- miði. Menn voru yfirleitt sammála um það, að bezt væri að endurhæfingarstarfsemin væri á vegum sjómannaskólanna, ef því yrði við- komið. Vélskólinn hefur þegar hafið, með góðum árangri, endurhæfingarnámskeið fyrir vél- stjórnarmonnina, og Stýrimannaskólinn á ýmsan hátt lagað sína kennslu að hinum breyttu aðstæðum, þó að þar sé enn ekki um sérstök endurhæfingarnámskeið fyrir eldri skipstjóra að ræða, enda töldu marg:r skip- stjórnarmenn að sér kæmi betur að fara út með skuttogurum en setjast á námskeið í landi, þar sem þeir þurftu meira að kynna sér með- ferð veiðarfærisins og aðstæðurnar við veið- arnar, en tækjanna, sem voru mörg þau sömu og þeir höfðu áður notað. Af þessu tilefni skrifaði fiskimálastjóri kollega sínum í Fær- eyjum, og bað hann að liðsinna íslenzkum skipstjórum, sem vildu fara út með fær- eyskum skuttogurum, og varð hann vel við þeim tilmælum. Það má því segja, að endur- hæfingarstarfið sé komið á sæmilegan rekspöl, að því er lýtur að yfirmönnum. En þeir fiska nú lítið einir enn þá, skipstjórarnir og vél- stjórarnir, og það þurfti líka að huga að kunn- áttu hásetanna. Það hefur um langt árabil verið hörgull á netamönnum á togveiðiflotanum, einkum tog- bátunum og fjölgun togara hlaut að gera þenn- an hörgul enn tilfinnanlegri. Þegar nýsköpunartogararnir voru að koma á fimmta og sjötta áratug aldarinnar varð nokkur hreyfing í þá átt að kenna unglingum netabætingu og netavinnu í landi, vegna þess að menn töldu að meira lægi á að fjölga neta- mönnum en svo að hin hefðbundna kennslu- aðferð nægði. Hin hefðbundna aðferð hefur verið sú, að unglingamir lærðu netavinnuna og reyndar öll önnur sjóvinnubrögð um borð í skipunum á veiðum. Þessi gamla aðferð er vissulega góð og hefur reynzt okkur vel, en hún er seinleg og ýmsum annmörkum háð, ekki sízt, ef mikið liggur við að fjölga neta- mönnum og mönnum sem kunna almennt til verka um borð. Það þurfti náttúrlega fyrst og fremst e:n- hver að vera um borð, sem hefði vilja og þekk- ingu til að segja unglingum til og þeim varð að gefast einhver tími til þess, en þegar skip er á veiðum er oft lítill tími til kennslu. Það var þó ekki nóg að einhver um borð gæti og vildi gefa sér tíma til að kenna unglingi, það varð líka að vera um borð, unglingur sem vildi leggja það á sig að læra, en til bess varð hann máski að standa frívaktir og taka á sig námið utan hins reglulega vinnutíma á dekki. Ef skipum fjölgaði ekki ört, dugði flotanum þó þessi seinlega og handahófskennda aðferð til að endurnýja nægjanlega netamannahópinn. 42 — ÆGIR

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.