Ægir

Árgangur

Ægir - 15.02.1974, Blaðsíða 12

Ægir - 15.02.1974, Blaðsíða 12
Utgerð og aflabrögð SUÐUR- OG SUÐVESTURLAND í janúai' 1974. Margir af stærri bátunum voru búnir til loðnuveiða og voru því mun færri sem stund- uðu þorskveiðar en á sama tíma síðastliðið ár, á þrem útgerðarstöðum hafði engum fiski ver- ið landað í janúar, (Stokkseyri, Eyrarbakka og Vogum), ennfremur var veður á þessu svæði erfitt til sjósóknar. Afli bátaflotans í mánuðinum miðað við óslægðan fisk varð 4449 (6110) lestir bolfisk- ur 195 (589) lestir hörpudiskur og 15 lestir ruslfiskur. Aflinn í einstökum verstöðvum (Tölur fyrir 1973 innan sviga): Hornafjörður: Þaðan stunduðu 6 (9) bátar veiðar, 3 með línu og öfluðu 87 lestir og 3 með botnvörpu og öfluðu 109 lestir. Aflinn alls varð 196 (328) lestir bolfiskur í 30 (59) sjó- ferðum. Vestmannaeyjar; Þaðan stunduðu 14 bátar veiðar, 7 með net og öfluðu 254 lestir og 7 með botnvörpu og öfluðu 79 lestir. Aflinn alls varð 333 lestir bolfiskur. Tölur þaðan til saman- burðar frá fyrra ári eru ekki til nema til 15.1., en þá voru byrjaðir 17 bátar og höfðu aflað 780 lestir, en 23 jan. hófst eldgosið. Þorláksliöfn: Þaðan stunduðu 14 (24) bát- ar veiðar, 8 með net og öfluðu 530 lestir og 6 með botnvörpu og öfluðu 119 lestir. Aflinn varð 649 (533) lestir bolfiskur í 53 (82) sjó- ferðum. Grindavík: Þaðan stunduðu 33 (34) bátar veiðar, 12 með línu og öfluðu 226 lestir, 12 með botnvörpu og öfluðu 159 lestir og 9 með net og öfluðu 350 lestir. Aflinn alls varð 720 (855) lestir bolfiskur og 15 lestir ruslfiskur í 156 (175) sjóferðum. Sandgerði: Þaðan stundaði 21 (25) bátur veiðar, 9 með línu og öfluðu 228 lestir, 4 með net og öfluðu 86 lestir, 8 með botnvörpu og öfl- uðu 64 lestir. Aflinn alls varð 378 (886) lestir bolfiskur í 110 (158) sjóferðum. Keflavík: Þaðan stunduðu 37 (58) bátar veiðar, 27 með línu og öfluðu 399 lestir, 6 með net og öfluðu 120 lestir og 4 með botnvörpu og öfluðu 98 lestir. Aflinn alls varð 617 (1269) lestir bolfiskur í 186 (333) sjóferðum. Enn- fremur landaði skuttogarinn Dagstjarnan þar 143 lestum úr tveim veiðiferðum. Hafnarfjörður: Þaðan stunduðu 3 (7) bát- ar veiðar með línu og öfluðu 58 (158) lestir í 15 (20) veiðiferðum. Ennfremur land- aði togarinn Maí 67 lestum úr einni veiðiferð og skuttogarinn Vestmannaey 188 lestum úr tveim veiðiferðum. Reykjavík: Þaðan stunduðu 4 (11) bátar veiðar, 2 með botnvörpu og öfluðu 114 lestir, 1 með net og aflaði 12 lestir og 1 með línu og aflaði 10 lestir. Aflinn varð alls 136 (128) lestir bolfiskur í 9 (21) löndunum. Ennfremur landaði 1 síðutog- ari 142 lestum úr einni veiðiferð og einn skut- togari 161 lest úr einni veiðuferð. Akranes: Þaðan stunduðu 10 (7) bátar veið- ar, 9 með línu og öfluðu 361 lest og 1 með net og aflaði 24 lestir. Aflinn alls varð 384 (301) lestir bolfiskur í 82 (67) sjóferðum. Þar að auki landaði skuttogarinn Krossavik 285 lestum úr 4 veiðiferðum. Rif: Þaðan stunduðu 11 (10) bátar veiðar, 9 með línu og öfluðu 294 lestir, 2 með net og öfluðu 93 lestir. Aflinn alls varð 387 (560) lestir bolfiskur í 114 (110) sjóferðum. Ólafsvík: Þaðan stunduðu 17 (23) bátar veiðar, 10 með línu og öfluðu 230 lestir, 7 með net og öfluðu 199 lestir. Aflinn alls varð 429 (807) lestir bolfiskur í 115 (217) sjóferðum. Grundarfjörður: Þaðan stunduðu 5 (4) bát- 48 — Æ GIR

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.