Ægir

Árgangur

Ægir - 15.02.1974, Blaðsíða 16

Ægir - 15.02.1974, Blaðsíða 16
ERLENDAR FRÉTTIR Fiskveiðar á 500 faðma dýpi Rottuhalafiskstautar verða mjög líklega innan tíðar til sölu í fiskbúðum, ef marka má þær tilraunaveiðar á rottuhala, sem White Fish Authority hefur látið gera. Rannsóknar- skip stofnunarinnar Cirolana hefur undanfar- ið verið við tilraunaveiðar undan vesturströnd Bretlands og þá helzt verið að athuga, hvernig togveiðar gengju á 500 faðma dýpi og þar yfir, eða meira en tvisvar því dýpi, sem enn er almennt veitt á. Cirolana veiðir með hefð- bundinni vörpu og útbúnaði. Á þessu dýpi hefur skipið veitt svonefndan rottuhala, en lystugra nafn á skepnunni er Corephenoides eða handsprengjuvarpari (grenadier), einnig deplaháf, gaddaskötu, blálöngu og lítinn djúp- sjávarfisk (bream). Allir þessir fiskar eru ætir og hver veit nema þeir geti komið eitt- hvað í stað þorsksins, sem Bretar tapa við ísland. Á Cirolana er verið að athuga, hvort þessir fiskar syndi nógu þétt til þess að þeir séu veiðanlegir í það miklu magni, að það borgi sig að veiða þá. Ef það reynist svo gæti þarna orðið um margra milljóna sterlings- punda veiðar að ræða. Meðan þessum veiði- tilraunum er haldið fram, er verið að rann- saka fiskgæðin með tilliti til markaðanna, nema næringargildis því að allur fiskur er svipaður að því leyti, enda hefur það ekki áhrif á fisksölu, heldur það hvernig fiskurinn geymist og hversu lengi hann helzt ferskur, og þá þarf að rannsaka gerð vefjanna, litar- háttinn og bragðið, sem hvorttveggja eru markaðsatriði. Nafnið og útlitið hefur áhrif á söluna líka, en þar sem áðurnefndir fiskar eru flestir heldur ljótir ásýndum, er líklegt að það verði að kokka þá eitthvað ofan í mannskapinn og selja þá máski sem fiskstauta eða fisklím. Húsmóðurinni verður að lítast vel á fiskinn, það er höfuð-markaðsboðorðið. Það er því ekki ftliiia Rabbit Fisj? TþorpbacK Ray Greaterspolfed Dogíisi) 52 — Æ G I R

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.