Ægir

Árgangur

Ægir - 15.02.1974, Blaðsíða 24

Ægir - 15.02.1974, Blaðsíða 24
Skipstjóri á Jörva ÞH er Hinrik Þórarinsson, en fram- kvæmdastjóri útgerðarinnar er Þórarinn Vigfússon. Faxaborg GK 40 í júní s.l. bættist 459 rúm- lesta nótaveiðiskip í íslenzka fiskiskipaflotann. Skip þetta var Faxaborg GK 40, sem keypt var notað frá Noregi og hét áður Moflag Junior. Eig- andi skipsins er Faxaborg s.f. Hafnarfirði. Skipið er byggt hjá A/S Hommelvik Mek. Verksted í Noregi árið 1967, en lengt um 6 m árið 1969. Skipið er smíð- að úr stáli eftir reglum Det Norske Veritas og í flokki 4- 1A1 Deep Sea Fishing S, ICE C. Skipið hefur eitt þilfar stafna á milli, hvalbak að framan og yfirbyggingu að aftan. Undir þilfari er skipinu skipt með 8 þilum í eftirtalin rúm, talið framan frá: Stafn- hylki fyrir sjóballest; netalest (geymsla) með ferskvatns- geymum undir; fjórar fiski- lestir með botngeymum fyrir brennsluolíu undir lestum 1, 2, og 4; vélarúm með síðu- geymum og hágeymum fyrir brennsluolíu: íbúðir með fjór- um 2ja manna klefum, en undir þeim er stefnisgeymir fyrir ferskvatn og skuthylki aftast fyrir ferskvatn. Aftast í netalest eru keðju- kassar, en fremst í fiskilest 1 er asdikklefi. í hvalbak eru geymslur, klefi fyrir hafnar- ljósavél og frystigeymsla fyr- ir matvæli. Yfirbygging á þilfari að aft- an nær út í síður, en gangur liggur eftir miðju. Þar eru fjórir einsmanns klefar; íbúð skipstjóra, sem samanstendur af svefnklefa og setustofu; tveir matsalir, eldhús, lítil matvælageymsla, salerni, bað og vélarreisn. Á bátaþilfari er brú skips- ins, en þar er stýrishús, korta- klefi og eins manns klefi. Aðalvél skipsins er frá MWM, gerð TBD 484—6, 1100 hö. við 375 sn/mín., sem teng- ist gegnum kúplingu skipti- skrúfubúnaði frá Hjelset, gerð 3 RKT/60. Utan um skrúfu er skrúfuhringur. Framan á aðal- vél er deiligír, Hytek FG2-440 HC-LR, sem við tengjast vökvadælur fyrir vindur, hlið- arskrúfur o. fl. Hjálparvélar eru tvær frá MWM, gerð RHS 518 V. Önn- ur vélin skilar 116 hö. við 1500 sn/mín og knýr Stam- ford rafal 50 KVA, 3x220 V, 50 rið og dælu fyrir lágþrýsti- vindur, Allweiler SNH 940. Hin vélin skilar 83 hö. við 1000 sn/mín og knýr Stam- ford rafal, 50 KVA, 3x220 V, 50 rið, og háþrýstidælu, Vickers 3525 V, fyrir kraft- blökk. í hvalbak er hafnar- ljósavél, Lister 28,5 hö. Skip- ið er búið tveimur hliðar- skrúfum, Schottel gerð 2. Fyr- ir hliðarskrúfur eru tvær há- þrýstivökvadælur, Vickers 50 V 109, drifnar af aðalvél. Stýrisvél er frá Frydenbö. Hydroforkerfi, bæði sjó- og ferskvatns-, er frá Bryne Mek. Verksted. íbúðir eru hitaðar upp með rafmagnsofnum. Pælikerfi fyrir geyma er frá Peilo Teknikk. Eftirtaldar lágþrýstar vind- ur eru frá Brattvaag: Tog- vinda, gerð D1A10/3; akkeris- vinda, gerð KB7-42-25; bómu- sveifluvinda, gerð VMA 2; bómulyftivinda, gerð TMA 3, línuvinda C2L og kapstan. Auk þess er lágþrýst hjálpar- vinda við þilfarshús frá Nor- winch, gerð MF 20/30. Kraft- blökk er frá Triplex, gerð 504/ 300. Auk þess tvær færslu- blakkir frá Triplex gerð TRH- 70 og TR-70. Fiskidæla er Rapp U 700. Aðalvél drífur eina G19 lágþrýstidælu fyrir vindur og háþrýstidælu, Vick- ers 45V60, fyrir fiskidælu. Lestum 1, 2 og 4 er skipt með tveimur lausum langsþil- um í 3 hólf. Lest nr. 3, sem bættist við eftir lengingu, er skipt í 3 vatnsþétta geyma, sem gerðir eru fyrir sjóhring- rás. Helztu tæki í stýrishúsi og kortaklefa eru: Ratsjá: Kelvin Hughes. gerð 18/9, 48 sml. Ratsjá: Furuno FR-151-TR MKII, 32 sml. Miðunarstöð: Koden KS-321-UA. Dýptarmælir: Simrad EH 2C. Asdik: Simrad SB 2. Framhald á bls. 47. Rúmlestatala ................ 459 brl. Mesta lengd..................... 15.76 m. Lengd milli lóðlína............. 43.50 m. Breidd (mótuð) .................. 8.23 m. Dýpt (mótuð) .................... 4.50 m. Lestarými ........................ 650 m^. Brennsluolíugeymar ............... 72 m3. Ferskvatnsgeymar .................. 44 m 3. Ballastgeymar...................... 13 ml 60 — ÆGIR

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.