Ægir

Årgang

Ægir - 01.03.1974, Side 6

Ægir - 01.03.1974, Side 6
Már Elísson: Rannsólmir í þágu s j á varútv egsins Erindi flutt á ráðstefnu Verkfræðingafélags Islands 3. febrúar 1973 Svo virðist, sem viðfangsefni mitt „Rann- sóknarþarfir í þágu fiskveiða og fiskvinnslu" ætti samkvæmt dagskrá ráðstefnunnar að mestu að beinast að haf- og fiskirannsóknum og fiskiðnaðarrannsóknum, þ. e. að ræða starfsemi þeirra tveggja rannsóknarstofnana, sem um þessi mál fjalla og hvaða kröfur eigi að gera til þeirra um rannsóknir, umfram þá starfsemi, sem þar fer nú fram. Vissulega er þetta verðugt viðfangsefni og víðtækt. Samt sem áður tel ég rannsóknar- þarfir sjávarútvegsins — fiskiðnaður meðtal- inn — vera aðrar og meiri en þær, sem þessar stofnanir einar sinna. Er hér um að ræða ýmsar hagfræðilegar eða efnahagslegar athug- anir, sem fara fram á vegum ýmissa aðila, skipatæknilegar athuganir og þjónusta, sem fram fer nú á vegum Fiskifélags íslands og Fiskveiðasjóðs, athuganir á framleiðni, ýms- ar markaðsrannsóknir og vöru- eða afurða- rannsóknir og þróun (product research and development) sem of lítið er sinnt hér á landi, og síðast en ekki sízt fiskeldistilraunir í söltu vatni. Að mínu viti verður að líta á alla þessa þætti rannsókna og þjónustu í samhengi, þar sem þeir eru sjávarútveginum mikilvægir. í stuttu máli sem þessu, vinnst ekki tími til að fara ítarlega í hvern þessara þátta, né verður reynt að telja í smáatriðum ýmis rann- sóknarviðfangsefni, sem þörf er að sinna. Ég vil nefna nokkur grundvallaratriði, áður en fjallað verður um hina ýmsu þætti rann- sókna fyrir sjávarútveginn. Samræming án ofstjómar. Bent hefur verið á þörfina á að taka þurfi upp ákveðin stefnumið í vísindarannsóknum 62 — Æ GIR almennt, sem svarað geti fljótt breytilegum þörfum og markmiðum þjóðarinnar í heild og þjóðarbúskaparins. Þetta er augljóst og þarfn- ast ekki nánari röksemda. Hitt má samt ekki fylgja, að talið verði að slíka samræmingu eigi að byggja á ofstjóm, að starfsemi hinna vmsu stofnana verði skor- inn þröngur starfsrammi, sem háð er ein- hverju yfirkontrolli. Þetta er samt því miður orðið of ríkt í okkar þjóðfélagi á ýmsum sviðum og hefur reynzt bæði dýrt, óhagkvæmt og svo þungt í vöfum, að það hefur tafið fram- gang góðra mála. Enda veit oft á tíðum í þessum tilfellum enginn hver ábyrgð ber, né hver lokaákvörðun tekur. Að því er snertir rannsóknarstofnanir ein- stakra atvinnugreina, verður að skapa þeim sæmilegt svigrúm innan heildarstefnunnar og jafnframt að tryggja sem hezt tengsl við at- vinnuveg þann, sem viðkomandi stofnun á að þjóna. Við skulum ekki gleyma bvi, að um langt bil var fiskimaðurinn sinn eigin fiskifræðing- ur og vill vera bað að vissu leyti enn. Fisk- verkandinn byggði einnig á eigin reynslu, oft með ágætum árangri. Nú hafa risið sérstakar stofnanir til að- stoðar þessum aðilum. Sú aðstoð kemur miklu síður að nægilega góðu og skjótu gagni, ef ekki er unnt að skapa gagnkvæmt traust og samvinnugrundvöll, án yfirdrifinna pólitískra afskipta, þar sem skipzt er á skoðunum og hugmyndum, og þar sem þarfir viðkomandi atvinnuvegar ráða stefnunni að verulegu leyti. Þess er ekki að vænta, að fámenn þjóð og tiltölulega fjármagnslítil fyrirtæki geti annað öllu sviði rannsókna. Við verðum að takmarka starfsemi rannsóknastofnana atvinnuveganna

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.