Ægir

Volume

Ægir - 01.03.1974, Page 21

Ægir - 01.03.1974, Page 21
KW rafall. Rafkerfi skipsins er 24 V jafnstraumur. Stýris- vél er frá Sharp. Vindubúnaður skipsins er vökvaknúinn (háþrýst kerfi, 140 kg/cm2) frá Rapp. Tog- vinda er af gerðinni CW 460/ 80 með víramagn 775 faðma af iy4" vír, hvor tromla. Línuvinda er af gerðinni LS 120 og bómuvinda BW 80. Af öðrum búnaði má nefna 10 rafdrifnar Elektra færa- vindur og rækjuflokkunarvél. Helstu tæki í stýrishúsi eru: Ratsjá: Furuno FR151 TR, 32 sml. Dýptarmælir: Koden SRM 871 A. Talstöð: Sailor 76D/46T, 35 W, D.S.B. Sjálfstýring: Sharp Helsman. Rúmlestatala ..................... 18 brl. Mesta lengd.................... 14.29 m. Lengd milli lóðlína ........... 13.10 m. Breidd (mótuð) ................ 3.94 m. Dýpt (mótuð) .................... 1.60 m. Brennsluolíugeymar .............. 1.60 m3 Ferskvatnsgeymir ................ 0.60 m3 Ganghraði ......................... 9 sml. Votaberg ÞH 153 Ms. Grímsey ST 2 var ekki eina skipið, sem Skipaviðgerð- lr h.f. í Vestmannaeyjum af- hentu á s.l. ári. Nýsmíði stöðv- &rinnar nr. 9 var Votaberg ÞH 153 og var smíði lokið, er eld- gosið hófst í jan. á s.l. ári. Skipið var smíðað fyrir Svein- björn Joensen, Þórshöfn, en er na í eigu Þorbergs Jóhanns- sonar og Níelsar Jóhannsson- ari Þórshöfn. Þessi tvö skip frá Skipavið- gerðum h.f. eru byggð eftir sömu teikningu, en véla- og tækjabúnaður frábrugðinn að nokkru leyti. Aðalvél skipsins er Scania Vabis D 11, 153 hö. við 1800 sn/mín., tengd Twin Disc MG 509 niðurfærslugir (2.95:1). Skrúfubúnaður er frá Propul- sion, skrúfa 3ja blaða (föst stigning) með 915 mm þver- máli. Rafall á aðalvél er Trans- motor ACG 155, 3,6 KW. Ljósavél er Petter PHl, 6 hö. við 1500 sn/mín. og við hana 3,5 KW rafall. Rafkerfi skips- ins er 24 V jafnstraumur. Stýrisvél er Wills-Ridley. Togvinda er Rapp CW 460/ 45 með víramagn 435 faðma af 1 y4" vír, hvor tromla. Línu- vinda er Rapp LS 120 og færavindur eru Elektra, sam- tals 8 stk. Helztu tæki í stýrishúsi eru: Ratsjá: Furuno FR151 TR, 32 sml. Dýptarmælir: Furuno F-850. Fisksjá: Furuno AD-Scope, MK II. Talstöð: Sailor 76D/46T. 35 W, D.S.B. Sjálfstýring: Sharp Hels- man. ★ Ægir óskar eigendum og áhöfn til hamingju með hin nýju skip. LEIÐRÉTTING. Sú villa slæddist inn í lýsingu á Faxaborg GK 40 á bls. 60 í síðasta tbl. Ægis, að mesta lengd skipsins (í töflunni neðst á síð- unni) er talin 15,76 m, en á að vera 48,93 m. ÞEIR FISKA SEM RÓA MEÐ VEIÐARFÆRIN FRÁ SKAGFJÖRÐ ÆGIR — 77

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.