Ægir - 01.04.1975, Blaðsíða 8
Sjávarútvegurinn 1974
llfíi' Mriisí framhald gvfíinanohllisins iuii sjávarútveqinn 1974
Honnin inian venntanlega Ijúha í mvsta blaiíi
Tómas Þorvaldsson:
Saltfiskframleiðslan 1974
Saltfiskframleiðsl-
an á árinu 1974 var
43.300 1. af blaut-
söltuðum fiski og
jókst um 6.300 lest-
ir eða tæp 17% frá
árinu á undan. Þar
af voru teknar til
þurrkunar um 9.000
lestir, sem verða um
6.000 lestir þurrar,
og er það svipað og
árið 1971 og 1972. Útflutningur gekk greið-
lega á blautfiski og fékkst gott verð fyrir ver-
tíðarframleiðsluna. Óvenjulega mikil söltun
var yfir sumar- og haustmánuðina og var það
að miklum hluta smáfiskur, sem erfiður
reyndist í sölu. Þrátt fyrir aðvaranir frá SÍF
á miðju sumri var saltað mikið af þessum
fiski.
Þess misskilnings varð vart eftir fréttir
af söluferð til Suður-Ameríku á síðastliðnu
hausti, að þar hafi verið um sérstaka söluferð
að ræða til að selja þurrkaðan smáfisk, sern
er auðvitað ekki rétt, en hitt ber að játa, að
mikil aukning á söltum smáfiski hafði í för
með sér söluvandamál, þar sem lakari gæða-
flokkar af honum reyndust illseljanlegir eða
óseljanlegir blautir, en sölusamtökin urðu að
reyna að selja hann eins og annan fisk og
því var hluti hans tekinn í verkun og reynt
að fá fyrir hann viðunandi verð á þurrfisk-
mörkuðum, og er ekki enn séð hver útkoman
verður, en fátt bendir til þess að endar nái
saman.
Hér stefnir augljóslega í óheillaátt og sýnir
eftirfarandi tafla þá þróun, sem átt hefur
sér stað síðustu fimm árin í útflutningi 3
blautsöltuðum þorski.
Vert er að vekja sérstaka athygli á þvt
hversu istærðarskiptingin er lík fyrstu fjögur
árin, en árið 1974 nær stórfiskur ekki sömu
kílóatölu og árið á undan, þrátt fyrir 13,7%
heildarmagnsaukningu. Hinsvegar eykst sölt'
un smáfisks um 118% eða rúmlega tvöfaldast
á sama tíma. Það gefur auga leið, að þetta
þýðir stóraukið smáfiskadráp, ef gert er ráð
fyrir að hlutur saltfiskframleiðslunnar í srna-
fiski sé óbreyttur og má reikna með að salt'
Þyngd útflutts blautverkaðs þorsks
1970—1974
Sporðar í
50 kg pakka
Stórfiskur ......................... 10/30
Millif iskur ....................... 30/40
Smáfiskur .......................... 40/60
Smáf iskur ......................... 60/80
Handfiskur ........................... 80/100
Alls útflutt blautverkað
98 — Æ GI R
1970 1971 1972 1973 1974
Lestir Lestir Lestir Lestir Lestif
19.795 18.800 20.601 23.535 23.370
1.931 1.903 2.282 2.261 3.364
1.255 1.306 1.566 1.499 2.897
575 1.099 976 949 2.464
24 36 55 52 70
23.580 23.144 25.480 28.296 32.165