Ægir - 15.06.1975, Qupperneq 20
NÝ FISKISKIP
I þessu blaði er fjallað um
tvö ný fiskiskip, byggð hinan-
lands, en það eru, Seifur BA 123
frá Básum h.f. og Þórsnes II
SH 109 frá Slippstöðinni h.f.
Ægir óskar eigendum og áhöfn-
um þessara skipa til hamingju.
Einnig birtist hér yfirlit yfir
raðsmíði Slippstöðvarinnar á
skipum af stærðinni 100—150
brl., en Þórsnes II er síðasta
skipið í þeirri raðsmíði.
Seifur BA 123
Skipasmíðastöðin Básar h.f.,
sem hefur haft aðsetur í Hafn-
arfirði, afhenti 31. maí s.l.
rúmlega 20 lesta eikarfiski-
skip, sem er nýsmíði stöðvar-
innar nr. 3. Áður hefur stöðin
afhent Viðar ÞH 17 (6. tbl.
’74) og Haftind HF 123 (18.
tbl. ’74).
Skip þetta er af hefðbund-
inni gerð með lúkar fremst,
fiskilest og vélarúm aftast.
Vélarreisn og stýrishús er úr
áli. í lúkar eru hvílur fyrir 4
menn og eldunaraðstaða.
Fiskilest er með lestarstoðir
og skilrúm úr áli, svo og ál-
lestargólf. í vélarúmi eru
tveir brennsluolíugeymar, en
ferskvatnsgeymir fremst í
lest.
Aðalvél er Volvo Penta,
gerð TMD 100 A, 210 hö við
1800 sn/mín, tengd Twin Disc
niðurfærslugír, gerð MG 509,
niðurfærsla 2.95:1. Skrúfu-
búnaður er frá Propulsion, 3ja
blaða skrúfa með fastri stign-
ingu, þvermál 990 mm.
Framan á aðalvél er aflúttak,
Rockford 10" (1:1) fyrir
vindudælu. Rafall á aðalvél er
frá Alternator h.f., 3.5 KW,
24 V. Hjálparvél er Fary-
mann, gerð 27L14, 8 hö við
3000 sn/mín. Við vélina er
rafall frá Transmotor, 3.6 KW,
24 V. Rafkerfi skipsins er 24
V jafnstraumur. Stýrisvél er
Scan Steering, gerð MT 180.
Vindur skipsins eru vökva-
knúnar (háþrýstikerfi). Tog-
vnda er frá Vélaverkstæði J.
Hinriksson, búin tveimur tog-
tromlum (16Omm0 x 700 mm0
x 370 mm) og koppum. Tog-
tromlur eru gefnar upp fyrir
650 faðma af 1/4" vír, togátak
vindu á miðja tromlu (430
mm0) 1.4 t og tilsvarandi
vírahraði 80 m/mín. Línu-
vinda og bómuvinda eru frá
Vélaverkstæði Sig. Svein-
björnssonar h.f., línuvinda af
gerðinni HL 200 og bómu-
vinda af HB 50 gerð. Þá er
skipið búið kraftblökk frá
Rapp, gerð 19 R og 7 rafdrifn-
um Elektra færavindum. Dæla
fyrir vindur er Denison TDC
20—11 (tvöföld) drifin af
aðalvél um aflúttak.
Helztu tæki í stýrishúsi eru:
Ratsjá:
Furuno, gerð FRS 48, 48
sml.
Miðunarstöð:
Koden KS 510.
Sj álfstýring:
Sharp Skipper.
Dýptarmælir:
Furuno, gerð FH 600.
Fisksjá:
Furuno, gerð AD-Scope.
Talstöð:
Skanti, gerð TRP 2000,
200 W SSB.
Eigendur Seifs BA eru Jón
Steingrímsson, sem jafnframt
er skipstjóri, og Jón Gestur
Sveinbjörnsson.
Rúmlestatala ......................... 22 brl.
Mesta lengd ....................... 14.60 m
Lengd milli lóðlína .............. 13.20 m
Breidd (mótuð) ..................... 3.94 m
Dýpt (mótuð) ....................... 1.70 m
Lestarrými ........................... 18 m3
Brennsluolíugeymar .................. 2.0 m3
Ferskvatnsgeymir .................... 0.6 m3
194 — Æ GIR