Ægir - 01.07.1975, Qupperneq 12
um úr fersku í salt vatn. Mikilvægt er að
flytja seiðin á réttan hátt í salt vatn, bæði
með því að ala þau um tíma í hálfsöltu vatni,
og svo er mikilvægt, að þau séu nægilega
þroskuð til að geta þrifizt í söltu vatni. Uni-
leverfyrirtækið hefur yfirleitt alið laxinn í
2—4 kg þyngd, en það tekur um 18 mánuði.
Fóðrið, sem notað er, er eingöngu þurrfóður,
samsett eftir ,,formúlu“ vísindamanna fyrir-
tækisins. Til að framleiða 1 kg af laxi hefur
yfirleitt þurft um 1.6 kg af þurrfóðri.
Nokkur fyrirtæki í Noregi eru vel á veg
komin með laxeldi í sjó. Má þar t. d. nefna
laxeldisstöðina á Hitra í Þrándheimsfirði, en
þar hefur einkar góður árangur náðst. I
Bandaríkjunum hafa allmargar tilraunir ver-
ið gerðar með eldi Kyrrahafslax í sjó. Alls
starfa Kyrrahafs- og Atlantshafsmegin um
12 fyrirtæki við eldi Kyrrahafslax, og hefur
mörgum þeirra orðið vel ágengt. Fyrirtæki
nokkurt í Oregon hefur aukið framleiðslu sína
ár frá ári, og vonast það til að geta framleitt
á næsta ári 1500 tonn af Kyrrahafslaxi. Það
er því allt útlit fyrir, að laxeldi í sjó verði
arðbær atvinnugrein eins og t. d. kjúklinga-
eldi, en úr því fæst skorið á næstu árum. Er
það að sjálfsögðu mikið undir því fjármagni
komið, sem veitt verður til tilrauna og rann-
sókna á þessu sviði, hvort tekst að leysa að-
steðjandi vandamál, þannig að laxeldið geti
orðið arðbært.
Silungur
Á síðustu árum hafa menn náð mjög góð-
um árangri með eldi silungs. Sú tegund, sem
mest er alið af, er regnbogasilungur (salmo
gairdneríi), en einnig er alið talsvert af
bleikju og urriða. Mestur hluti silungseldis-
ins fer fram í fersku vatni, en á síðustu ár-
um hafa menn einnig alið silung í sjó.
Álitið cr að Frakkar hafi fyrstir manna
klakið út silungshrognum einhvem tíma á 14.
öld. Vitað er með vissu, að árið 1741 var reist
klakstöð fyrir silung í Þýzkalandi, en ekki er
nákvæmlega vitað, hvenær farið var að stunda
silungsklak sem atvinnugrein i Evrópu. I
Bandaríkjunum var fyrsta fyrirtækið, sem
starfaði við silungsklak, reist 1853, og á
næstu árum jókst sú starfsemi mjög, bæði í
Evrópu og Bandaríkjunum. Danir og Japanir
framleiða einnig nú mikið af silungi, og er
framleiðsla þeirra yfirleitt mun meiri en
Bandaríkjamanna. Meðal landa, þar sem
framleitt er talsvert af silungi, eru Noregur,
Chile, Kanada og Pólland.
Snake River Trout Company í Colerado er
eitt stærsta silungseldisfyrirtæki í Bandaríkj-
cnum. Árlega framleiðir þetta fyrirtæki rúm-
lega 300 tonn af silungi Eldistjarnir fyrir-
tækisins eru 10 ekrur að flatarmáli (1 ekra
= 4/10 úr hektara). Ástæðuna fyrir velgengni
þessa fyrirtækis, má vafalaust rekja til þess,
að fyrirtækið fær mjög gott og tært vatn til
eldisins úr volgum uppsprettum. Vatnsmagnið
úr uppsprettum þessum er um 240.000 mín-
útulítrar af 15 °C heitu vatni. Fiskurinn er al-
inn á þurrfóðri, og virðist þurfa um 1.5 kg
af fóðri til að framleiða 1 kg eif fiski. Fiskur-
inn vex mjög hratt við þessi skilyrði og nær
20—35 cm lengd á 7—14 mánuðum. Fyrir-
tæki þetta notar mikið vatn miðað við fram-
leiðslumagn silungs, og má t. d. benda á að
Danir nota yfirleitt tvisvar til þrisvar sinn-
um minna vatn við silungseldi sitt.
Dönum hefur orðið mjög vel ágengt við sil-
ungseldi og árlega flytja Danir út silung fyr'
ir um 4 milljarða íslenzkra króna. I Danmörku
eru um 700 fiskeldisstöðvar. Yfirleitt ala Dan-
ir silunginn í tjörnum, en vatn til eldisins fa
þeir venjulega úr ám og lækjum. Silunginn
ala þeir á fiskúrgangi. Til að framleiða 1 kg
af silungi þarf venjulega 5—7 kg af fiskúr-
gangi. Venjuleg markaðsstærð á þessum sil-
ungi er 300—500 gr.
Tilraunir til að ala silung í söltu vatni eru
allar fremur nýjar af nálinni. Þó hefur þegar
náðst umtalsverður árangur í nokkrum lönd-
um, þar á meðal Noregi, Japan og Bandaríkj-
unum. í Noregi hófust tilraunir með eldi 1
sjó fyrir um 16 árum. Þá voru gerðar tilraun-
ir með að ala regnbogasilung í fliotbúrum-
Silungurinn var alinn í 200—300 g þunga>
en illa gekk þá að selja þessa stærð. Var Þa
gripið til þess ráðs að ala silunginn í 600—
g þunga, og hlaut hann þá mun betri viðtök-
ur á markaðnum. Flotbúrunum, sem silungur'
inn er alinn í, er komið fyrir í sundum á miÞ1
eyja, þar sem straumur er mikill og sjórinU
endurnýjast því stöðugt. Silungurinn er alinn
á loðnu og rækjuskel. í rækjuskelinni er mik1
af litarefnum (karotin), sem gefa silungnun1
rauðleitan blæ. Á síðustu árum hefur það au
izt mjög í Noregi og víðar, að svokallað þul1
fóður er notað í stað blautfóðursins eða ur,
gangsfisks. Þurrfóðrið er mun auðveldara
204 — Æ G I R