Ægir - 01.04.1985, Blaðsíða 33
'tt ríkisfyrirtæki sér um að
Vtja út túnfisk og humar. Hefur
e a fyrirtæki miklar frystigeymsl-
to ^ ^a° ^'cente sem la^a 6-000
nn/ en megintilgangurinn með
fggingu þessarar miklu frysti-
^eymslu var að taka á móti fiski
a erlendum veiðiskipum sem
Atok Ve'^ar vesturströnd
u og nota hafnarborgina
Þ u u'° Sem umskiPunarhc>fn.
a hefur ekki þróast á þann veg
á .m l'' ste^ °8 ekki er Ijóst hver
l æ an er, en þar af leiðandi eru
t(^SS3r ^rysl'8eymslur að mestu
tír-"1 árið, nema yfir túnfisk-
a 'lið. Hafnaraðstaða er mjög
takmörkuð á öllum eyjunum
nema á Sao Vicente, þar sem er
ágæt höfn, en nú er einnig verið
að byggja höfn á eyjunni Sal, en
þar er alþjóðaflugvöllurinn fyrir
eyjarnar. Góð aðstaða er á Sal til
að taka á móti lifandi humri, en
hann er fluttur með flugvélum á
markaði í Evrópu og fæst gott
verð fyrir hann þar. Mikill áhugi
er fyrir því að auka þessar veiðar.
Verkefni okkar íslendinganna hér
á eyjunum felst að mestu í því að
leita nýrra möguleika fyrir
auknum veiðum og nýjar fiskteg-
undir sem ekki hafa verið nýttar
fram að þessu. í upphafi var verið
á togveiðum og varð árangurinn
á þeim langt framar vonum og
fékkst mjög góður afli, eða allt að
3 tonnum á klukkustund. Eftir
þessa fyrstu könnun er talið
öruggt að veiða megi 4.000 tonn
af botnfiski, án þess að skaða
stofninn en þessar tölur eru að-
eins fyrstu tölur og gætu breyst við
nánari rannsóknir. Við tún-
fiskveiðarnar er eins og fyrr segir
notuð lifandi beita, en verulegt
vandamál hefur verið að afla
nægrar beitu til veiðanna og er
það eitt af okkar verkefnum að
kanna með betri tækjabúnaði
hvort hægt sé að auka beituveið-
arnar. Útkoman á þeim athug-
unum hefur ekki gefið miklar
vonir um aukningu, þar sem
megnið af þeim beitufiski sem
fannst á dýpra vatni var of stór
fyrir túnfiskinn. Samkvæmt upp-
lýsingum sem aflað hefur verið
eru þó áraskipti að því hve mikið
kemur af beitufiski á svæðið.
Einnig hafa verið stundaðar tún-
fiskveiðar á mb. Feng. Gengu
þær treglega í upphafi, en betur
þegar á leið, enda íslendingar
ekki vanir slíkum veiðum. Skipið
er vel búið til þessara veiða.
Undanfarið hefur mb. Fengur
stundað veiðar með humargildr-
urog lofa þærveiðargóðu, en afli
var um 5 tonn eftir 6 vikur að
veiðum. Til samanburðar má
geta þess að árið 1983 var heild-
arútflutningur af humri aðeins 15
tonn, en að auki fór eitthvað
magn á innanlandsmarkað. Fyrir
utan það sem að framan greinir
eru uppi hugmyndir um að gera
tilraunir með rækjutroll og flot-
troll á næstunni.
Rekstur skipsins hefur gengið
vel fram til þessa og verkefnið í
heild gengið án teljandi skakka-
falla. Eru stjórnvöld mjög ánægð
með þetta framlag íslendinga til
aðstoðar við uppþyggingu sjávar-
útvegs á Grænhöfðaeyjum.
ÆGIR-141