Ægir - 01.02.1987, Blaðsíða 24
80
ÆGIR
2/87
Fiskifélags íslands og sýnir
landaðan botnfiskafla 1986 skipt
eftir kjördæmum.
Það ber að athuga, að úrvinnsl-
an getur færst eitthvað á milli
staða og gámafiskur fellur til af
lönduðum afla í hverju kjördæmi.
Reykjaneskjördæmi ber höfuð
og herðar yfir önnur kjördæmi.
Þar er langmest landað af botn-
fiski ífyrraeða 106 þúsund tonn.
Þetta stingur heldur í stúf við
þá umræðu, sem nú er í gangi, að
allur sjávarútvegur í Reykjanes-
kjördæmi sé á vonarvöl og öll
skip farin burt.
Norðurland eystra hefur rétt
vinninginn yfir Vestfirði, en
nokkra athygli vekur Norðurland
vestra, en einungis 5% af lönd-
uðum botnfiskafla kemur á land
þar um slóðir.
Austfirðir koma sterkt út, eins
og reyndar síðar á eftir að koma í
Ijós.
Reykjavík dettur verulega
niður listann, þegar kjördæmin
öll eru skoðuð í heild.
Togarar og bátar
í næstu töflu sést skipting á
botnfiskafla íslendinga 1986 eftir
togurum og bátum. Einnig eru til
samanburðar tölurnar fyrir 1985
í töflu 4.
Botnfiskafli eykst milli áranna
1985 og 1986 um 38 þúsund
tonn eða um 7%, en þorskveiðin
eykst um 32 þúsund tonn eða um
10%.
Nær öll aukningin er þannig í
þorskveiðinni.
Eðlileg ályktun af þessum
tölum er sú, að hinar ströngu,
margra ára, friðunaraðgerðir eru
farnar að bera verulegan árangur.
Hver man nú eftir því, að
haustið 1983, þegar ákveðið var
að setja kvótann á, þá stóðum við
frammi fyrir 200 þús. tonna þorsk-
afla á ári?
Þá stóð sjávarútvegurinn
Tafla 2
Landaður botnfiskafli skipt eftir kjördæmum 1986
í þús. þaraf
tonna % þorskur %
Reykjaneskjördæmi Norðurland eystra . 106 18 54 16
86 14 61 18
Vestfjarðarkjördæmi 83 14 52 15
Suðurlandskjördæmi 79 13 29 8
Austurlandskjördæm 79 13 52 15
Vesturlandskjördæm 63 10 44 12
Reykjavík 44 7 16 5
Norðurland vestra . 32 5 24 7
572 94 332 96
Erlendis 37 6 15 4_
609 100 347 100
Tafla 3
Botnf iskafli 1986 skipt eftir togurum og bátum
í þús. þaraf
tonna % þorskur %
Togarar 357 59 179 52
Bátar 252 41 168 48
609 100 347 100 ^
Tafla 4
Botnfiskafli 1985 skipt eftir togurum og bátum
í þús. þaraf
tonna % þorskur %
Togarar 340 60 164 52
Bátar 231 40 151 48,
571 100 315 100^
frammi fyrir einu versta vanda-
máli á þessari öld, en bar gæfu til
að taka á því þannig, að nú getum
við horft bjartari augum fram á
við.
Aflaverðmæti togaranna
í næstu töflu lítum við betur á
aflaverðmæti hinna 100 togara
íslendinga.
L.I.Ú. hefurfyrirvenjuaðsafna
tölum um togarana og er skýrslan
fyrir árið 1986 nýkomin út.
Flestirtogararnireru þarskráö"
og eru tvær næstu töflur unnar
upp úr þessari skýrslu.
Hægt er að skipta aflaverðma31!
togara í þrennt, þ.e. verðma211,
landað innanlands, sem fer hér1
vinnslu, verðmæti landað erlenh'
is í gámum og skipum og loksin5
frystitogara, sem njóta nokkurrar
sérstöðu.