Ægir - 01.02.1987, Síða 52
108
ÆGIR
2/87
ÆGIR.
2
Fiskigrunnin kringum landið eru að
minnsta kostí um 1600 Q mílur og eins
og gefur að skilja ættu þau að vera sem
mest notuð af okkur sjálfum, þar sem við
eigum margfalt betri aðstöðu hvað snertir
nærveru þeirra, og við ættum að geta fært
okkur þau svo vel sjálfir í nyt, að við
gætum flutt útlendingum okkar eigin fisk,
fiskaðun af okkur sjálfum, á okkar mið-
um, á eigin skipum, í stað þess sem þeir
nú sækja hann mest hingað sjálfir og ekki
ósjaldan þar að auki fara í hága við
lands lög og rjett með yfirgangi sínum og
ofbeldi.
Það ætti því að vera áhugamál hvers
einlægs íslendings, sem ann þjóð sinni,
hvort heldur er bóndi eða fiskimaður,
yfirmaður eða undirgefmn, þingmaður
eða þjónn, að stuðla að því, að þeir lands-
menn, sem að einhverju levti hafa fiski-
veiðarnar sem atvinnu gera sér þær sem
arðvænlegastar, svo þessi atvinnuvegur,
sem hefir svo ákaflega mikla þýðingu
fyrir tramtíð landsins, geti blómgast og
tekið sem mest um framförum.
Óðum nálgast sá tími. sem ísland
tengist enn fastar við umheiminn, og
margir útlendir stórgróðamenn híða þess
með óþreyju að það verði sem fyrst, því að
með ritsíinasambandinu hyggja þeir, að
þeir hafi lykilinn í hendi sjer að fjársjóð-
um íslands þ. e. fiskiveiðunum, þess
vegna verðum við að gjöra hvað mögu-
legt er, og styðja að því, að margra alda
úrelt fyrirkomulag á þessum atvinnuvegi
verði endurbætt, og fært í það horf, sem
aðrar þjóðir hafa gjört hjá sér, og álíta
að sje skilyrði fyrir varanlegum framför-
um; sem er samvinna hygð á fjárfram-
lögum og lærdómsríkum bendingum og
uppörfun þings og stjórnar.
Það er flestum kunnugt að nokkur
^yggðarlög, sem næst liggja samgöngunum
og hafa bezt skilyrði fyrir því, að færa sjer
nýjar og betri aðferðir við fiskiveiðarnar
í nyt og hafa mest orðið fyrir áhrifum
menningarinnar, hafa á skömmum tíma
tekið furðu miklum framförum, þó
þessir staðir hafi engin betri skil-
yrði frá náttúrunnar hendi en íjöldi
annara. Mörg byggðarlög við fiskiauðg-
ustu strendur landsins lifa vit' fátækt og
volæði.
Þetta er eitt meðal annars dæmi
þess, hve mikil vöntun er á leiðhein-
ingum, og hvað mikið vantar á, að
fiskiveiðarnar sjeu almennilega stund-
aðar með þekkingu og dugnaði.
Pjer fiskimenn og sjómenn! Yður er
þetta rit ætlað, það á að vera ykkur leið-
arvísir og málsvari, það á að leiðbeina
og styðja að öjlu því. sem getur orðið
ykkar atvinnuveg til þrifa og framfara,
að öllu því, sem getur stutt að ykkar sam-
eiginlegri velgengni; það á að vera tals-
maður yðar þegar þjer eruð önnum kafn-
ir á hafi úti og liafið ekki tima til umsvifa;
það á að upplýsa yður sem búið á út-
kjálkum og annesjum, þar sem auður-
inn er annarsvegar, en því miður ofi
vanþekking og fátækt hinsvegar. Öll þau
málefni, sem að einhverju leyti geta stutt
að framförum í fiskiveiðunum, veiðiað-
ferðinni, hagnýtingu, verkun o. fl. verður
rækilega rætt og útlistað, hafandi fyrir
augum bæði útlent oginnlent, sem gefui’
leiðbeiningar og upplýsingar í því efm-
Myndir verða við og við hafðar i
blaðinu, bæði þær sem snerta veiðarfæn
veiðiaðferðir, skipa og bátalag o. fl. °o
höfum vjer fengið Jofun mikilsháttar
manna eins og capt. Drechsel og ritstjóra
»Norsk Fiskeritidendea M. Barclay til að
aðstoða oss í því efni. Ennfremur mun-
um vjer taka smávegis fræðandi og' skemt-
andi greinir, sem að einhverju leyti eru
þess verðar að þeim sje gaumur gefinn-
Jafnframt gjörum vjer oss far um