Ægir - 01.03.1991, Side 6
114
ÆGIR
3/91
Sjávarútvegurinn 1990 • Sjávarútvegurinn 1990
Þorsteinn Gíslason,
fiskimálastjóri:
Sjávarútvegurínn 1990
Að vanda birtist í þessu hefti
Ægis og því næsta yfirlit, sem
ýmsir forráðamenn sjávarútvegs-
ins hafa tekið saman um gang
útgerðar og fiskiðnaðar s.l. ár,
stöðu greinarinnar og útlit. Færi ég
viðkomandi bestu þakkir fyrir
skýrar og vel samdar greinar.
Við áramót
Árið 1990 var íslensku þjóðinni
gjöfult. Sjöunda árið í röð fór
heiIdaraflinn yfir 1.500 þús. lestir.
Áætlaður ársafli er nánast sá sami
og 1989. Á vetrarvertíðinni var
tíðarfar hagstætt og því góð nýting
á veiðitíma. Tvennt vekur athygli
þegar litið er á niðurstöður ársins.
Aflaárin sjö fylgja kvótaárunum
sjö, en einkum vekur athygli hin
mikla aukning útflutningsverð-
mæta á ári hins stöðuga gjaldeyr-
isverðs. Þetta ber að þakka
miklum og verðmætum botnfisk-
afla, mikilli eftirspurn og hækk-
andi verði.
Samkvæmt áætlun er verðmæti
aflans upp úr sjó um 47.5 millj-
arðar króna, en var 1989 37.3
milljarðar og hefur því aukist um
rúmlega 27% milli ára.
Þá er áætlað að andvirði útflutn-
ings verði um 71.6 milljarðar
króna á móti 58.3 milljörðum
1989, aukning um tæpð 23%.
Þorskaflinn verður um 331 þús-
und lestir, sem er um 23 þúsund
lestum minna en 1989, en þá var
hann 354 þúsund lestir. Sam-
dráttur í þorskafla hefur afgerandi
áhrif, því oft hefur hann gefið 40-
45% af heildarútflutningsverð-
mætunum.
Ýsuaflinn eykst um 6.6% frá
fyrra ári, eða úr 62 þúsund lestum
í 66 þúsund lestir.
Þá eykst ufsaaflinn um 20%.
Hann var 80 þúsund lestir árið
1989, en verður nú um 96 þúsund
lestir og er þetta mesti ufsaafli sem
fengist hefur á einu ári.
Karfaaflinn er 97 þúsund lestir á
móti 93 þúsund lestum og kemur
þessi aukning aðallega frá úthafs-
veiðum á karfa.
Grálúðuaflinn hrynur úr 58 þús-
und lestum 1989 niður í 37 þús-
und lestir.
Rækjuaflinn eykst um 2.3 þús-
und lestir og verður nú 29.3 þús-
und lestir.
Loðnuaflinn brást á haustvertíð
eins og í fyrra og verður nú ársafl-
inn um 20 þúsund lestum meiri,
eða 687 þúsund lestir.
Vegna sölutregðu á síld til
manneldis var síldarkvótinn ekki
veiddur, eða aðeins 88 þúsund
lestir á móti 97 þúsundum lesta i
fyrra. Til fróðleiks fylgir hér með
tafla I og II sem sýna aflatölur hrá-
efnis og útflutningsverðmæti s.L ~
ár.
Um áramótin tóku gildi ný lög
um stjórn fiskveiða. Frá því kvóta-
kerfið var tekið upp í ársbyrjun
1984 hafa verið sett ný lög og all-
viðamiklar breytingar gerðar með
tilliti til reynslunnar. Til undirbún-
ings seinustu lagasetningar var
tekinn miklu lengri tími en áður. A
ársþingum og aðalfundum helstu
hagsmunaaðila sjávarútvegsins
náðist góð samstaða og sátt um til-
lögugerð í sambandi við fram-
komið frumvarp, og var í flestum