Ægir

Árgangur

Ægir - 01.03.1991, Síða 16

Ægir - 01.03.1991, Síða 16
124 ÆGIR 3/91 Jón Ólafsson: Fiskmjöls- og lýsisframleiðslan 1990 Veiöar Metveiði, óvissa og veiðibann, allt sem gjarnan einkennir mjöl- og lýsisiðnaðinn, einkenndu árið 1990. Þar sem iðnaðurinn er algerlega háður veiðum úr stofni skammlífra flökkuuppsjávarfiska er ekki á vísan að róa með það aflamagn sem til skiptanna er hverju sinni. Á árinu sýndi loðnan sem aldrei fyrr hversu erfitt er að reiða sig á hana í áætlanagerð og framtíðarskipulagningu iðnaðar- ins. Eftir nánast algert hrun haust- veiða 1989, þar sem loðnuaflinn varð einungis 54 þús. tonn saman- borið við rúm 300 þús. hvort haust síðustu tvær vertíðir á undan, var mikil spenna um ára- mótin. Skipin héldu til veiða strax á nýju ári og var nánast mokveiði strax frá fyrsta degi. Skilaði vetrar- vertíðin 612 þús. tonna afla og er það met á vetrarvertíð frá því loðnuveiðar hófust hér við land. Samt sem áður var ekki lokið við að veiða allan kvótann. Voru rúm 90 þús. tonn óveidd þegarveiðum lauk. Öllum þessum afla var landað innanlands að frátöldum 25 þús. tonnum sem var landað í Noregi, Færeyjum, Danmörku og Skotlandi. Það, að ekki var meiru landað erlendis, helgast líklega af tvennu. Annars vegar að íslenskar verksmiðjur teygðu sig til hins ýtr- asta í hráefnisverði og hins vegar var ekki tími til langra siglinga. Á vormánuðum gáfu fiskifræð- ingar út kvóta fyrir vertíðina 1990 til 1991. Sá loðnukvóti hljóðaði upp á 600 þús. tonn. í hlut okkar íslendinga komu 78% en 22% skiptu Norðmenn og Grænlend- ingar jafnt skv. samningi þjóð- anna. Keypt voru 6.500 tonn at' hluta Grænlendinga og var heild- arkvóti íslendinga því 475 þús. tonn. Haustveiðar gengu mjög erfiðlega. Fjöldi loðnubáta hóf leit og veiðar og að auki hélt Hafrann- sóknastofnun úti skipum við leit og mælingar. Hefur aldrei verið lagt út í viðameiri rannsóknir á útbreiðslusvæði loðnunnar af hálfu stofnunarinnar. En allt kom fyrir ekki. Hrygningarstofn loðn- unnar sem fannst var blandaður yngri árgöngum og því erfitt að veiða hann án þess að ganga á yngri árganga um leið. í byrjun desember opinberaði Hafrann- sóknastofnun niðurstöður haust- mælinga á hrygningarloðnu. Hafði stofnunin einungis mælt 360 þús. tonn, en hún telur að 400 þús. tonn þurfi til hrygningar. Lagði stofnunin því til veiðibann, en til þess kom þó ekki þar sem skipin hættu sjálfviljug veiðum í byrjun desember. Einungis höfðu þá veiðst 83.500 tonn frá því veiðar hófust í október. Rúm 80 þús. tonn af síld voru veidd á haustinu. Af þeim afla fóru í bræðslu um 34 þús. tonn af heil- síld og 14 þús. tonn af síldarúr- gangi. Hefur síldin verið góð búbót fyrir margar verksmiðjur þegar haustveiðar á loðnu hafa brugðist sem raun hefur verið síð- ustu tvær vertíðir. Mjölframleiðsla Eins og að ofan greinir skiptust á skin og skúrir í loðnuveiðum. Síld- veiðar gengu eðlilega og hlutfall síldar í bræðslu var svipað og árið áður. Samdráttur er í annarri mjöl- framleiðslu. Framleiðslan skiptist þannig síð- ustu tvö árin: 1989 1990 lonn tonn Þorskmjöl 26.758 23.600 Karfa-/spærl.mjöl 1.619 1.190 Loðnumjöl 109.899 114.850 Síldarmjöl 5.918 9.500 Samtals 144.194 149.140 í töflunni hér að ofan verður að hafa fyrirvara varðandi framleiðsH síldar- og loðnumjöls. Við vinnslu er mjög algengt að hráefni bland- ist saman og því erfitt að sundur- greina milli mjöltegunda. Frarn- leiðslutölur fyrir árið 1989 eru teknar úr Útvegi FÍ og má ætla að um 3.000 tonn af síldarmjöli haf' færst yfir á aðra mjölframleiðslu það ár. Búklýsisframleiðsla Þar sem haustveiðar á loðnu

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.