Ægir

Árgangur

Ægir - 01.03.1991, Síða 20

Ægir - 01.03.1991, Síða 20
128 ÆGIR 3/91 Ágúst Einarsson: FISKMARKAÐIR og áhrif þeirra á fiskvinnslu Fiskmarkaðir á íslandi hafa ekki starfað lengi. Fyrstu markaðirnir hófu starfsemi sína um mitt árið 1987 eða fyrir rúmum þremur árum. Á fiskmörkuðum mætast fram- boð og eftirspurn á fiski á hverjum degi og verð myndast á skjótan hátt. Afhending á seldum fiski er ábyrgst og allar greiðslur eru banka- tryggðar. Þetta er einfalt kerfi. Mjög víða í heiminum er þessi sama aðferð notuð við að selja fisk og fjölmargar aðrar vörur. Rökin fyrir slíkri starfsemi eru að meiri hagkvæmni næst með þessu versl- unarformi en á annan hátt. Fiskmarkaðir hafa tvíþættu hlut- verki að gegna. Þeir eru kerfi verð- myndunar, sem nýtist m.a. til út- reiknings á hlut sjómanna og þeir eru vettvangur þar sem fiskur skipt- ir um eigendur. Þetta tvennt er nátengt, en verðmyndunarhlutverk- ið er mikilvægt í Ijósi sögunnar. Verdlagsráð og skuttogarar Uridanfarna þrjá áratugi hefur Verðlagsráð sjávarútvegsins, sem er samstarfsnefnd fiskkaupenda þ.e. fiskvinnslustöðva, og fiskselj- enda, sem eru útgerðarmenn og sjómenn, ákveðið verð á fiski upp úr sjó og þar með ákveðið tekju- skiptingu í sjávarútvegi að veru- legu leyti. Þannig hefur Verð- lagsráð ákveðið stærstan hlut launa sjómanna og kostnaðar vinnslu auk tekna útgerðar. Ákvörðun innan Verðlagsráðs er oftast tekin fyrir atbeina yfirnefnd- ar, en þá er fulltrúi ríkisvaldsins oddamaður við fiskverðsákvörðun. Þessi tengsl ríkisvalds við fisk- verðsákvörðun á hverjum tíma þýða að ákvörðun um fiskverð er í reynd á ábyrgð ríkisstjórnar, oft bundin samningum um gengismál, loforðum um skuldbreytingar eða yfirlýsingum um launakjör ann- arra stétta. Eftir 1972 þegar skuttogaratíma- bilið hófst og íslendingar eignuð- ust um 100 togara á 10 árum sem gjörbreytti sókn í sjávarafla, þá breyttust tengsl útgerðar og vinnslu. Skipin og fiskvinnslan urðu að miklu leyti í eigu sömu aðila og uppbygging sjávarútvegs varð mjög hröð víða um land. Við þessar aðstæður var ekki þörf á markaði til að kaupa eða selja fisk. Skipin öfluðu fyrir sína vinnslu og það eina sem þurfti að ákveða var fiskverð, ekki aðallega til að ákveða skiptingu tekna milli útgerðar og fiskvinnslu, heldur til að finna reikningsgrunn fyrir laun sjómanna. Sjómenn búa við hlutaskipta- kerfi, sem þýðir að laun þeirra ráðast af verðmæti þess afla sem úr sjó er dreginn. Hlutaskiptakerf- ið, sem er gamalt hérlendis, er notað í ýmsum útfærslum víðast í heiminum við ákvörðun á launum sjómanna. Þetta fyrirkomulag innan Verð- lagsráðs sjávarútvegsins reyndist vel árum saman. Gámar, kvóti og markaðsvitund Gámaútflutningur fór að setja mark sitt á hugsunarhátt í sjávarút- vegi eftir 1985. íslendingar höfðu að vísu selt í áratugi á uppboðs- mörkuðum í Englandi og Þýska- landi og þekktu það kerfi vel. Það voru hins vegar eingöngu siglingar fiskiskipa. Nútíma flutningatækm gerði kleift að flytja minna magn i einu með gámum. Þessi útflutn- ingur dreifðist þá á miklu fleiri aðila. Flestar útgerðir kynntust upp' boðskerfinu við gámaútflutning og sáu að verð sveiflaðist upp og niður eftir gæðum og framboði- Það var mjög skemmtilegt og spennandi að fylgjast með eigin gámum í sölu erlendis auk þess sem það skilaði góðum tekjum. Þá vaknaði auðvitað áhugi hér- lendis. Fyrst menn gátu verið þátt' takendur á fiskmörkuðum erlend' is, töldu ýmsir að einnig væri hæg1 að hafa þetta fyrirkomulag innan- lands. Árið 1984 var kvótakerfið sett á, sem lokaði fyrir aðgang að veiðum nema fyrir þá sem áttu fiskiskip, en ýmsar vinnslustöðvar voru háðar fiskkaupum af óskyldum aðilum. Jafnframt þessu jókst markaðs- I vitund sjávarútvegsmanna. Orkan

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.