Ægir - 01.03.1991, Page 24
132
ÆGIR
3/91
og keilu, tegundum sem hér áður
fyrr var litið á sem nokkurs konar
afgangstegundir. Fiskmarkaðir hafa
þannig stuðlað að betri nýtingu
fisktegunda og aukið verðmæta-
sköpun á vannýttum tegundum.
Fiskmarkaðir hafa leitt til fleiri
og smærri fyrirtækja sem nýta sér-
hæfingu, lítið pláss og þar með
litla innri flutninga og ódýra yfir-
byggingu.
Sú kenning er til innan sjávarút-
vegsins, sem höfundur þessarar
greinar hefur talað fyrir, að fisk-
vinnslufyrirtækin myndu þróast í
tvær áttir.
Annars vegar í mjög stórar ein-
ingar sem hefðu mörg skip og
nýttu stærð sína til hagkvæms
reksturs.
Hins vegar í smærri fyrirtæki
sem sérhæfðu sig í framleiðslu, oft
lítil fjölskyIdufyrirtæki með bein-
um markaðstengslum og sölu sem
leggðu mikla áherslu á gæðafram-
leiðslu til fárra kaupenda.
Þessi kenning gerir ráð fyrir að
millistærð af fyrirtækjum með
einn togara eða tvo báta, svo og
nokkuð stærri fyrirtæki, sem vinna
allan „sinn afla", muni eiga veru-
lega erfitt uppdráttar og ekki
standast samkeppni við hlið hinna
tveggja gerða fyrirtækja sem áður
voru nefnd.
Margt bendir til, að þetta eigi
við rök að styðjast. Þróun síðustu
ára staðfestir þetta, m.a. rekstrar-
erfiðleikar millifyrirtækjanna og
uppgangur fiskmarkaða, sem
hefur leitt til smærri fyrirtækja.
Einnig hafa fyrirtæki sameinast og
myndað stærri einingar, eins og
samruni fyrirtækja í Reykjavík og á
Akranesi sýnir.
Tafla 4 sýnir fjölgun vinnslu-
stöðva í nágrenni fyrstu fiskmark-
aðanna.
Af töflunni má glöggt ráða hve
vinnslustöðvum hefur fjölgað í ná-
grenni markaðanna á síðustu ár-
um. Þannig var heildarfjöldi svip-
aður frá 1983 til 1986 eða á milli
Fjöldi fiskvinnslustöðva 1981-1990 Reykja- Hafnar- Kópa- Sam- vík fjöröur vogur tals
1981 10 14 4 28
1982 14 18 5 37
1983 18 20 5 43
1984 16 19 3 38
1985 18 17 5 40
1986 20 20 7 47
1987 26 26 7 59
1988 27 26 6 59
1989 30 25 7 62
1990 30 32 10 72
Tafla 4: Fjöldi fiskvinnslustöðva
1981-1990.
38 til 47 en fjölgar frá 1986 til
1990 verulega eða í á 8. tug fyrir-
tækja. Þetta segir vitaskuld ekkert
um afkastagetu fyrirtækjanna.
Því sjónarmiði hefur stundum
verið haldið fram, að fiskvinnslu-
fyrirtækjum eigi að fækka til að ná
fram betri nýtingu fjárfestinga, þar
sem afli mun ekki aukast á næstu
árum. Höfundur þessarar greinar
er ekki sammála þessu, enda geta
smærri einingar oft náð meira út
úr hráefninu einmitt vegna smæð-
ar sinnar, eins og áður hefur verið
vikið að. Það er ekki hægt að al-
hæfa um hagkvæmustu stærð fyrir-
tækja.
Innri flutningar og gæöamál
Nefna má einn þátt sem lítill
gaumur hefur verið gefinn, en er
athyglisverður ekki hvað síst
áhugafólki um vörustjórnun,
skipulag og rekstur fyrirtækja.
Hefðbundin fiskvinnslufyrirtæki
eru yfirleitt byggð fyrir alllöngu og
á tíma óverðtryggðra lána og of-
fjárfestinga. Stærð eldri fiskvinnslu-
stöðva í fermetrum er yfirleitt mjög
mikil. Þetta þýðir langar flutninga-
línur innan fyrirtækis, sem aðeins
að hluta eru vélvæddar. Ekki er
samfellt vélvætt flæði á framleiðslu-
vörum í íslenskum fiskvinnslufyrir-
tækjum og reyndarekki í langflest-
um öðrum greinum iðnaðar hér-
lendis.
Þessir innri flutningar kosta
mjög mikið auk óhagræðis í allri
vinnsluuppbyggingu. Það er með
fiskvinnslu eins og annan rekstur.
Hann leitast við að fylla út í allt
það pláss sem til staðar er.
Skýrasta dæmið um áhrif vöru-
stjórnunar og hagræðingar í fisk-
vinnslu eru frystitogarar. Það eru
einkum þrjár ástæður fyrir góðu
velgengi þeirra.
í fyrsta lagi er unnið allan sólar-
hringinn,
í öðru lagi er alltaf unnið úr nýje
hráefni,
í þriðja lagi eru flutningaleiðir
mjög litlar og skipulag með afbrigð-
um gott í vinnslurásinni, sem or-
sakast af því takmarkaða rými sem
til staðar er.
Þessar litlu innri flutningaleiðit
spara verulega fjármuni og eru
einnig helstu kostir lítilla fyr>r'
tækja sem nýta umhverfi oft mikle
betur en „víðáttumikil" fyrirtæki-
Svo að aftur sé vikið að áhrifum
fiskmarkaða á fiskvinnslu, þá eru
áhrif á gæði mjög mikilvæg. Eðli
uppboðsmarkaða á vöru, sem er
hætt við skjótum skemmdum, er
að gæði skipta verulega máli. Lak-
ari gæði seljast almennt á lægra
verði og þar sem markaður er
hreinsaður á hverjum degi, þ-e'
ekki er geymt frá einum markaðs-
degi til annars, þá getur meira að
segja farið svo að varan seljist aNs
ekki.
Reynsla fiskmarkaða hér er að
gæði fisks hefur áhrif á verð, en
minna en ætla mætti. Ástæðan er
sú, að umframeftirspurn hefur
verið á mörkuðunum mikinn hluta
starfstíma þeirra, sem kemur auð-
vitað fram í háu verði.
Sú skoðun er fyllilega réttm^1
að fiskmarkaðir stuðli að háui11
gæðum með bættri meðferð fisks |
fiskiskipum, í löndun, í flutningi ti
og frá markaði og í fiskvinnslu.
Hátt verð á fiskmörkuðum hefö{