Tímarit lögfræðinga - 01.04.1980, Qupperneq 11
FORMÁLI
Liðin eru rúm 20 ár síðan skrá Friðjóns Skarphéðinssonar um lága-
bókmenntir eftir íslenska höfunda eða í íslenskum þýðingum birtist
í Tímariti lögfræðinga. Síðan hefur mikið verið skrifað á þessu sviði,
og er því full þörf á að bæta við verkið. Árið 1976 kom út Lögfræðinga-
tal Agnars Kl. Jónssonar, og þótti sýnt, að við samningu skrár sem
þessarar mætti hafa verulegt gagn af því. Það varð því að ráði, að
þetta verkefni var valið til lokaprófs í bókasafnsfræði.
Umsjón með gerð skrárinnar hafði Sigrún Klara Hannesdóttir
lektor, en um ýmis flokkunaratriði og leiðbeiningar var leitað til sér-
fróðra manna í lögfræði. Kann ég hlutaðeigandi bestu þakkir fyrir
aðstoðina.
EFNI
Til að skráin færi ekki úr böndum, varð að marka stefnu varð-
andi efnisöflun. Markalínur þurftu að vera skýrar og efnis varð
að vera unnt að afla á viðráðanlegan hátt. Með afmörkun efnisins var
sýnt, að eitthvert lögfræðilégt efni kæmist ekki í skrána. Ákveðið var
einnig, að skráin skyldi ná yfir 20 ára timabil.
Eftirtalin tímarit, æviágrip og skrár voru lögð til grundvallar við
efnissöfnun:
1) Tímarit lögfræðinga 1956—1975
Úr tímaritinu voru teknar þær greinar, sem töldust hafa lagalegt
gildi. Sleppt var: Afmælis- og minnirigargreinum, bókafregnum,
skrám yfir lög og lagasetningar, fréttum af starfsemi Lögfræð-
inga- og Lögmannafélagsins svo og þættinum „Á víð og dreif“.
Einstaka undanteknirigar voru gerðar, ef efnið var talið falla innan
marka skrárinnar. Þannig var tekin með skrá Friðjóns Skarphéð-
inssonar um lagabókmenntir, sem birtist í 4. tbl. 1955 og sem þessi
skrá er framhald af.
5