Tímarit lögfræðinga - 01.04.1980, Blaðsíða 12
2) Úlfljótur 1956—1975
Höfð var sama viðmiðun og fyrr var lýst. Sleppt var: Afmælis-
og minningargreinum, ,,Rekabálki“, og skriflegum prófverkefnum,
fréttum frá bæjarþingi og sakadómi Orators, frásögnum af stúd-
entaskiptum, nema í þeim væru verulegar upplýsingar, reikning-
um, yfirliti yfir störf Orators o. fl.
3) Blað lögmanna 1963—1965, Félagsbréf L.M.F.l. 1967—1971,
Fons juris 1974
Úr þessum blöðum var lítið efni tekið. enda birtust aðeins í þeim
fáar greinar. Úr lögmannablöðunum tveimur var helst tekið með
ýmislegt, sem varðaði lögmannastéttina í heild, svo sem lög Lög-
mannafélagsins, gjaldskrár og reglugerðir.
4) Lögfræðingatal. (Rv. 1976), Lögfræðingatal 1736—1963.
(Rv. 1963)
Nýrra ritið var yfirfarið ítarlega, og þau ritstörf, sem hugsanlega
gátu talist lagalegs eðlis og ekki voru komin í áðurnefndum tíma-
ritum, skráð á seðla. Lögfræðingatalið frá 1963 var einnig athugað,
ef vera kynni, að einhverra ritstarfa væri getið þar, sem ekki kæmu
einnig fram í því nýrra. Var allt efni, sem í náðist, skoðað og þá
ýmist tekið með í skrána eða því sleppt.
5) Skrá um rit háskólakennara og annarra starfsmanna háskólans
og háskólastofnana 1952—1960, 1961—1965 og 1966—1970
Ritstörf, sem þar voru talin, voru könnuð. Það sem hvorki hafði
komið fram í Lögfræðingatali né fyrrnefndum tímaritum var skráð
á seðla og athugað. Auk þess leyfði Þóra Oskarsdóttir, sem vinnur
að nýrri skrá fyrir tímabilið 1971-—1975, að farið væri yfir upp-
lýsingar, sem fastir kennarar lagadeildar höfðu sent henni.
6) Árbók Landsbókasafns 1957—1974
Islenskur ritauki, sem safnið flokkaði í 340 (lögfræði), var settur
á spjöld. Sérprentum úr íslensku lagatímaritunum var þó sleppt,
enda áttu greinarnar þá þegar að hafa komið fram. Sleppt var:
Nokkrum greinum, sem fjölluðu um hafréttarmál út frá pólitísku
eða efnahagslegu sjónarhorni, en bæklingar og rit utanríkisráðu-
neytisins voru þó nær undantekningarlaust tekin með. Greinum
og ritum sjórnmálalegs eðlis var hafnað svo og ýmsu öðru smálegu.
öllum sérprentuðum lögum og reglugerðum var sleppt, og aðeins
voru teknir með í skrána tveir lagabálkar með skýringum, þ.e.
6