Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.04.1986, Page 60

Tímarit lögfræðinga - 01.04.1986, Page 60
8. Sáttastörf í vinnudeilum; 9. Veiting atvinnuleyfa fyrir útlendinga; 10. Formennska í stjórn gjaldheimta; 11. Flutningur einkamála sem ríkisvaldiS er aðili að; 12. Formennska í stjórnarnefndum sjúkrahúsa, heilsuhæla, hjúkrunar- og elliheimila sem rekin eru á vegum ríkisins; 13. Skipun eftirlitsmanna með veiði vatnafiska og umsjón með starfsemi þeirra og með rekstri klak- og eldisstöðva fyrir hönd veiðimálastjóra; 14. Umsjón með eignum ríkisins; 15. Umsjón þjóðgarða og kirkjujarða; 16. Formennska í stjórn héraðsskjalasafna; 17. Eftirlit með útvarpsrekstri, myndbandadreifingu og kvikmyndum; 18. Formennska í barnaverndarnefndum; 19. Formennska í náttúruverndarnefndum; 20. Formennska í samgöngunefndum sem kæmu í stað sýslu- nefnda vai’ðandi sýsluvegi og önnuðust tengsl héraðsbúa við Vegagerð ríkisins; Þær hugmyndir sem hér hafa verið taldar í 20 liðum ber ekki allar að skoða sem ákveðnar tillögur um flutning verkefna frá miðstjórn- arstofnunum heldur fremur sem dæmi til að sýna fram á að hægt er að koma á umfangsmiklum verkefnaflutningi af þessu tagi. Um einstaka liði þykir rétt að taka fram eftirfarandi: Um 1.-6. Dómsmálastörf Störf sýslumanna hafa lengst af tengst dómsmálaráðuneytinu nán- ustum böndum. Það er því eðlilegt að verkefnaflutningur frá þessu ráðu- neyti og embætti ríkissaksóknara verði kjarninn í verkefnadreifing- arátaki. Einn aðalkosturinn við að flytja dómsstörf frá sýslumönnum til sérstakra héraðsdómstóla er sá að þá verður fært að auka hlutdeild þeirra í meðferð ákæruvalds að nýju. Lengi hefur það staðið þróun sakamálaréttarfars mjög fyrir þrifum að embætti ríkissaksóknara hefur ekki komist yfir að láta sækja dómþing af hálfu ákæruvaldsins eins og vert væri. Dómsstarfalausir sýslumenn ættu að geta flutt mál sem saksóknarar höfða en koma ekki við að flytja, og auk þess gætu sýslumenn sjálfir höfðað minni háttar mál, svo sem ölvunaraksturmál. Fulltrúar sýslumanna, lögreglustjórar og lögsagnarar, gætu átt hér hlut að máli með þingsókn og kröfugerð af hálfu ákæruvaldsins, t.d. 54

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.