Búnaðarrit - 01.01.1904, Page 16
12
skifti, sem fé er hleypt út úr þeim og á kvöldin þegar
mjöltum er lokið. Heflr þá færigrindaáburðurinn þann
kost fram yflr allan annan áburð. að ekkert er haft fyr-
ir að geyma hann, flytja út eða voryrkja.
Færigrinda-áburður reynist vel nálega á ails konar
þurlend rijörð, sem annars getur tekið móti eða varð veitt
nokkurn áburð. Hann gefur vanalega bæði mikið og gott
gras, jafnvel á harðbalamóum, þó mjög lítil not verði að
aigengum föstum áburði. Færigrindur geta eyðilagt mosa
í túnum. Nýsléttuð jörð þolir ekki grindurnar; ekki held-
ur mjög sendinn eða gljúpur jarðvegur. Ekki verðaþær
heldur notaðar í miklum haila eða stórgerðu þýfi.
Ærnar verða að hafa mikið rúm í grindunum, því
þá kemur áburðurinn að betri notum, og ekki þarf að
hreyfa hann. jörðin treðst minna og ærnar haldast hrein-
ar og eru frjálsari.
Á jörð sem rækt er í og vel er borið á annað árið,
fæst nægiiegur áburður hitt árið eftir eina nótt (5—7
stundir), þó kindinni sé ætlað alt að 4 □ álnum. Séu
grindurnar hringsettar, eins og drjúgast er, þurfa þær
þá að vera alt að 35 áln. utan um 25 ær, 50 áln. um
50 ær, 70 áin. um 100 ær, 100 áln. um 200 fjár o. s.
frv. Að visu er skaðlaust þó rúmið sé nokkru minna en
hér er sagt; en því nefni eg stærðina, að eg hefl oftséð
haft mjög skaðlega þröngt um ær í grindum á nætur-
tíma.
Með þessu móti geta 50 ær haldið rækt í 2 dag-
sláttum, ef þær eru látnar liggja inni um nætur í 12 vik-
ur, þó flestir mjaltablettirnir séu lagðir móti óveðurs nótt-
um, er ekki væri fært að byrgja ær í grindum. Mjalta-
blettirnir — bæði mál—geta hér um bil jafngilt 20 næt-
urbælum, eða a/4 þeirra.
Gott er að eiga færigrindur fyrir geldfé, ef því verð-
ur komið við. Má spara grindur með því að láta þær
gaDga með ærgrindunum eða með öðrum girðingum.;