Búnaðarrit - 01.01.1904, Blaðsíða 17
13
Torfl í Ólafsdal heflr reynslu fyrir því, að ám fari
jafnt fram, þó þær liggi í fjárbælum 5—7 st. um nætur
á sumrin í 16 vikur. Ætti því ekki að sjá mikið á
geldfé, þó það sé látið liggja í grindum nokkrar nætur
í góðu veðri, einkum þegar líður á sumar, ef féð verð-
ur að flækjast saman við búsmala hvort sem er.
Á hörðum, rótgóðum túnum, má einnig nota grind-
urnar fyrir fjárréttir vor og haust. Á mörgum jörðum
má þannig liagnýta sér mikinn og mjög góðan áburð,
sem nú fer víða alveg tíl ónýtis, ef menn að eins vilja
eignast grindurnar.
Grindurnar þurfa að vera léttar og iiðlega bundnar
saman svo hægt og fljótlegt sé að færa þær, hve marg-
ar sem eru, þó ekki sé viðlátinn til þess nema einn mað-
ur. Langar grindur eru verri, taka meira á sig og brotna
fremur en stuttar. Sama er að segja um þungar grind-
ur úr heilum borðum eða sveru efni, þær þola lítið eða
ekkert betur, en eru miklu dýrari.
Hæfileg lengd grinda er 9 fet og hæð okanna 3 fet.
Rirnar 4, svo lömb smjúgi eklci milliþeirra; tel eg bezt,
að þær séu 3/4 þml á þykt og 2” á breidd með 6” milli-
bili og 6” frá jörð— þetta er þó of gisið fyrir lömb á vor-
in. — Tvo skálista þarf á hverja grind út frá miðri efstu
riminni, líkt , er neglist í allar rimarnar.
Fljótlegt er og hentugt, að smíða grindur úr 9 feta
borðum 7 X8/4”- Borðið er þá í 3 rimar, 9 lista, eða H/2
oka, ef 2 listar eru hafðir í oka, sinn hvoru megin rim-
anna, negldir gegnum þær. Sjálfsagt er að hefla allar
brúnir. Bezt er að hefla alt efnið og tjarga grindurnar,
endast þær þá lengi og geta haldist heilar mörg ár.
Samkvæmt áður sögðu, þarf þá alt að 11 slíkar
grindur fyrir 50 ær —um nætur —. Efnið í þær, 22 borð,
mun naumast kosta meira en 11—16 kr. i kaupstöðum.