Búnaðarrit - 01.01.1904, Blaðsíða 22
18
um, hvetja þá og styrkja til framkvæmda í þessum tilgangi?"
Bændur þurfa að fá Ieiðbeining, meðal annars í því,
á hvern hátt sé bezt að geyma áburðinn og fara með hann
á hverjum stað. Sitt hagar hverjum, og margt hlýtur að
koma til athugunar, áður en mildð er lagt í kostnað; má
þar til nefna túnið, hverskonar áburður á bezt við það, eftir
jarðvegi og grasvexti að dæma, hvernig og hvenær er hent-
ugt að bera á það, hvort tvisvar verður slegið, hversu tún-
ið er lagað til að koma áburðinum út og vinna að honum.
Hvort mold er til á hentugum stað, góð og nógu mikil til
margra ára. Hvernig landslagi er háttað þar sem fjósið
er eða œtti að vera, og hvort mögulegt er að leiða vatn
þangað. Hverskonar byggingarefni veiður notað og borg-
ar sig bezt í framtíðinni. Stærð og fyrirkomulag bygging-
arinnar, stærð og gæði jarðarinnar, efnahagurbóndansm.m.
Aðferð þeirri, er eg hef nýlega nefnt, að safna öllum
áburðinum frá fjósunum saman í gryfju, fylgir sá ókost-
ur, að mjög er erfitt að koma honum út nema á flatlend
tún og lítið þýfð. Einnig er óþægilegt verk og sóðalegt
að ná svo þunnri mykju upp úr stórri gryfju, nema unt
sé að þynna hana enn meir með vatni, og aka henni svo
eða veita út um túnið. Þessi áburður mun þó efalaust
reynast vel á flestum túnum, sé alt í góðu lagi. Nokkrir
menn-helzt í Reykjavík —hafa reynt þessa aðferð. Ættu
þeir að skýrafrá aðterö sinni og reynzlu í Bunaðarritinu.
Annari aðferðinni, að þerra þvagið með mold, lýsir
Torfi bezt í ritgerð sinni. Lætur hann sjálfur hirða áburð-
inn á þennan hátt, og telur það beztu aðferðina. Þess-
konar áburður gefst líka mjög vel á grunnum jarðvegi, og
sendnum eða vikurbornum. Sé moldin smágjör og grjót-
laus, eykur hún slíkan jarðveg ogbætirhann. Þessari að-
ferð fylgir mikill erfiðisauki, og hún krefur mikla nákvæmni
og hirðusemi, því aldrei má vanta mold á fjósflórinn. Mold-
in þarf að vera mikil, 2/8 ten.fet á dag fyrir hverja kú, og
verður því að byggja sérstakt hús fyrir moldina á véturna
eða ætla sérstakt rúm fyrir hana í áburðarhúsinu. Aburð-