Búnaðarrit - 01.01.1904, Page 24
20
J>ó haugurinn rotni fyr ef hitinn er nokkuð niikill, þá mun
ekki ráðlegt að auka hann til muna með heyi, því þá
gæti hitinn orðið skaðlega mikiil. Hit.t mun líka mest vert,
að hitinn haldist jafn, og verði aldrei svo lítill að rotnun-
in hætti. —Þegar eg hef mælt hitann í mínu haughúsi, hefir
hann verið 6—10° á veturna ofan í haugnum, jafnvel nið-
ur að gólfi og 2—3 fet frá útidyrum. Aldrei hefir frosið
nema að eins við hleðsluna í útidyrum; þar hefir mykj-
an á vorin verið grænleit og hörð, en annarstaðar dekkri
og meirari. — Hitans vegna er sjáifsagt að hlúa sem bezt
að haughúsunum, beia í þau um innidyr eða göng frá fjós-
unum — er þó mega ekki valda dragsúg á kúnum —, og
setja þétta hleðslu við útidyr á veturna. Útidyrnar ættu
líka að vera í hié við kuldaátt, ef unt er að koma því
við. Veggir þurfa að vera þykkir, helst nokkuð í jörðu. Þak-
ið þarf að vera þykt og hlýtt. Jarnþök og timkurþök eru
óbrúkleg nema torf sé með. Okkar gömlu torfþök, með
þunnri þakhellu, eiga bezt við þessi hús. Vegna hita og
raka fúna viðir fijótt í húsum þessum, verður því a? hafa
viðina þétta og sterka undir þung þök. Nauðsynlegt er að
hafa loftsmugur á báðum stöfnum, svo viðirnir þorni á
sumrin. Norskur gránaborinn viður er óhæfilegar í þessi
hús. Margfalt lengur endist harður rekaviður og smurður
viður úr skipum. Gott ráð væri að smyrja viðina, vel þurra,
þegar bygt væri og t.jarga þá síðan. Þakið má ekki hvíla
á veggjunum, nema þeir séu úr góðu grjóti einu saman.
Veggir úr góðu hraungrjóti eru beztir — að undanskildum
múrveggjum —, ef slett er sementi í holurnar, eða leirbor-
in mold er höfð bak við hleðsluna og vandlega borin (stutl-
uð) milli steina. Leirmoldin, einkum sé það deigulmór,
varnar haugleginum að síga út í vegginn; ætti því að brúka
hana ef mögulegt er, bak við hleðslur og undir flóra, sem
áburði er ætlað að liggja við. Sé moldin ekki leirborin og
vel þétt í gólfi haughúsanna, er nauðsynlegt að steinleggja
þau, en á vel þéttu góifi nægir að hafa alt af moldarlag