Búnaðarrit - 01.01.1904, Page 27
23
setja megi —1 fets þykt lag af henni bak við hleðsluna
og undir flóritin. er varla um annað að velja — só þess
nokkur kostur — en að afla grjóts í hleðsluna, og gera hana
vatnshelda með steinlími. Steiniímið nefnist sement; selja
kaupmenn það í tunnum (360 með íláti) og kostor 1 tn.
vanaiega 8—13 kr. Til er sement af ýmsum tegundum,
mismunandi að gæðum og eiginlegleikum; er því nauðsyn-
legt, að hrúka góðar og viðeigandi tegundir. Portlands-
■sement er mest brúkað á Norðurlöndum, og þykir gefast
vel, einnig í vatni eða öðrum legi. Sementið má ekkert
vökna fyr en það er brúkað, þá er fyrst blandað sandi ná-
kvæmlega saman við sementið, og svo bleytt með vatni,
oins. miklu og blendingurinn tekur á móti, án þess að mik-
ið vatn setjist ofan á; þetta verður að gera í íláti Sand-
urinn verður að vera hreinn og moldarlaus, helzt dökk-
leitur, smáger, með grótum sandi saman við og sandkorn-
in hrufótt. Fjörusand ætti ekki að brúka, nema hann sé
rigndur eða saitið þvegið úr honum. — Sements-blendinginn
má búa til með ýmsu móti, og nota má hann á ýmsan
hátt. Ódýrast er og einfaldast, að hlaða úr góðu grjóti, fylla
allar holur og bil milli steinanna með grjótílísum og sletta
svo sementsblendingnum yíir öll samskeyti, í allar holur
■og hrufur. Só grjótið sjálft ekki vatnsheit, verður einnig
að klíua húð yflr steinana. Til þess að sementið tolli við
steinana, verður að þvo af þeim alla mold og óhreinindi
áður en sementað er. Sandurinn má vera 6 mælar á móti'
1 af sementi í holumar til að byrja með, en sterkari húð
verður að vera utan yfir, alt að 3 móti 1 utast. (Sbr. Bún-
aðarrit 17., bls. 277—283). — Með þessu móti má komast
af með tiltölulega mjög lítið sement. Sé grjótið gott og vel
felt, mun 1 tunna af sementi nægja í gryfju fyrir þvag úr
5 —10 kúm, eftir því, hve vel er felt í holurnar og hvort
húð þarf yfir alt grjótið eða ekki. Grjótið er mjög mismun-
andi að gæðum, misvel lagað, misfrekt á sementi og bind-
ur sementið misjafnlega.