Búnaðarrit - 01.01.1904, Síða 36
32
þar, sem ekki er kostur að ná lækjarvatni saman við for-
ina, en landslagi er vel háttað, má sæta lagi á vorin og
nota rigningarvatn af þökum og svöðum, og jafnvel leys-
ingarvatn, þegar klaki er í jörð, en rótin þíð, 3 þml. nið-
ur að minsta kosti. Klakinn varnar áburðinum að síga of
fljótt niður, og jarðvegurinn getur geymt mikið af frjó-
efnunum, þar til jurtirnar fara að nota þau.— Reynt hefl
eg og vetrarveitu á þennan hátt, með allgóðum árangri.
XII.
Hjólbörurnar áðurnefndu eru ætlaðar fyrir þunnan lag-
aráburð einungis. Af því þær eru nokkuð frábrugðnar venju-
legum hjólbörum eða handsleðum, og af því óviðfeldið er,
að tala um nafnlausan hlut, eða með nafni annars hlut-
ar, nefnast þær hér: Lagsleðinn (stytt úr lagarsl.), er það
einfalt og ókostbært handverkfæri fyrir einn mann. Að-
alpartar hans eru: 1 hjól, hassi, sem leikur á ásum og
einföld grind með handföngum og fótum, er tengir sam-
an kassann og hjólið. Lagsleðann er bezt að smíða úr
valborðum eða góðum við. Þarf til hans 2 borð, annað flett,
þálítið járn og smáspítur. Getur hver laghentur maður
smíðað hann eftir ástæðum sínum og hyggjuviti. En þar
sem eg hefi hvorki séð né heyrt getið um slíkt verkfæri, skal
eg lýsa hér mínum einfalda útbúningi.
Hjólið er i6 þml. í þvermál, úr B/4” borði, tvöfalt,
úr heilum bútum annarsvegar, en smábútum hinsvegar.
Járngjörð, jafnbreið og hjólið er þykt, er hituð og þrengt
á hjólið. Á miðju hjólinu er ferhyrnt gat 2x/2 þml. á hvora
hlið, og er ás úr góðum við, 1 alin að lengd, rekinn að
miðju gegn um hjólið; ef með þarf, má setja hornklampa
andstæða við hjólið, tvo hvoru megin, 1 á hvern kant áss-
ins. Endar ássins eru girtir og reknir í þá járnásar, er
ganga í járnhólka, sem reknir eru í göt á hliðum (kjálk-
um) grindarinnar, 2—3 þml. frá endum þeirra og neðri
brún. Kjálkarnir sagaðir á víxl úr B/4” borði, 2” ábreidd
að ofan og 4 — 5” að neðan, 3 álnir á lengd; eru þeir fest-