Búnaðarrit - 01.01.1904, Side 44
40
eru færðar. Þeir, er vilja verða aðnjótandi þessarar kenslur
verða að senda skrifiega beiðni þar um t.il félagsstjórnar*
innar, og skal teldð fram í henni um aldur, heimili og
stöðu. Beiðninni verður einnig að fylgja aldursvottorð, hegð-
unarvottorð og læknisvottorð. — Fyrirkomulag þessarar
kenslu er að öðru leyti, sem hér segir:
1. Nemendur á stórum búgörðum (höfðingjasetrum), þurfa
eins og áður er get.ið, að vera 3 ár. í kaup fá þeir fyrsta
árið 120 kr., annað áriðlöOkr. og þriðja árið 180 kr.
Vinnutími er ákveðinn, 11 — 12 stundir ádag. Nemend-
urnir eru að eins eitt ár á hverjum stað. Með því móti
gefst þeim kostur á, að sjá fleira, læra meira og kynn--
ast mismurandi aðfeiðum og vinnubrögðum.
2. ISemendur á myndar-bændaheimiium eru 2 ár. Þeirfá
í kaup 120 kr. fyrra árið og 150 kr. hið seinna. Þeir
eru eins og hinir, eitt ár í sama st.að.
3. Nemendur í fóðrun og meðferð nautgripa eru 3 ár und-
irumsjón félagsins. Starf þeirra er aðallega fólgið í því,
að hirða um kýr, gefa þeim, mjólka þær o. s. frv. Þeir
verðaaðhaldanákvæmarfóður-ogmjólkurtöflurþar sem
þeir eru. Vanalega dvelja þeir 2 ár á sama stað, en
þriðja. árið hafa þeir vistaskifti. Kaupið er 120 kr.
fyrsta árið, 160 kr. annað og 200 kr. hið þriðja.
Árið 1900 voru 70 nemendur i fyrsta og öðrum flokki,
en 10 í þriðja flokki.
Það er viðurkent af flestum málsmetandi mönnum í
Danmörku, að þessi verklega kenslu-aðferð hafi haft stór-
vægilega þýðingu fyrir landbúnaðinn. Hún hefir aukið og
útbreitt verklega kunnáttu í landinu og glætt áhugann hjá
yngri mönnum á búnaðinum. Margir beztu bændur Dana
hafa notið þessarar fræðslu. Sarra er að segja um ýmsa
starfsmenn hinna opinberu búnaðarmáía. — Þetta sama fyr-
irkomulag hefur einnig verið tekið upp annarstaðar eft-
ir Dönum, reynt og gefist vel.
Fyrir nokkrum árum, eg ætla það væri 1897, kom
„Mejerista Foreningenu á fót verklegri kenslu i meðferð