Búnaðarrit - 01.01.1904, Page 45
41
mjólkur og smjörgerð, með svipuðu fyrirkomulagi og er á
hinni verklegu kensiu Landbúnaðarfélagsins. Með þessu var
þeim, sem starfa á mjólkurbúunum eða gefa sig alla við
smjörgerð, gefimi kostur á að njóta betri og fullkomnari
tilsagnar, en þeir aður gátu fengið i þeirri grein. Sem
kensiustaðir, voru að sjálfsögðu valin álitiegustu mjólkurbú-
in, þau er höfðu sórstakiega orð á sér fyrir að búa til gott
smjör, og höfðu viðurkenda verkstjóra. Námstíminn er þrjú
ár, og dvelja nemendurnir 1 ár á hverju búi. Kaupið er
50 krónur fyrsta árið, 125 kr. annað og 200 kr. þriðjaárið.
Auk þessarar kensiu og þeirrar, er Landbúnaðarfélag-
ið annast, hafa ýmsir myndar-bændur tekið að sér að kenna
piltum ogungum mönnum verkleg störf, jarðyrkju og ann-
að, er að búskap lýtur. Sumir piltarnir taka að eins þátt
í einstökum störfum, læra þau, t. d. plæging, verkstjórn,
gripahirðing o. s. frv. Kaup er nemendunum goldið, en þó
tíðast nokkuru lægra en alment gerist. Geta má og þess,
að fyrir 4 árum síðan, hófst verkleg kensla í mjöltum í
Danmöiku. í þeirri kenslu taka þátt bæði karlmenn og
kvenmenn, áöilum aldri. Fyrsta árið (1900) voru náms-
tímabilin 17, og kensiunnar nutu 470 mennalls; þar af
286 karimenn og 184 stúlkur. Nemendurnir voru á aldr-
inunr frá 11 — 55 ára. — Þessi kensla er þegar byrjuð hér
á landi, og vonandi nota hana svo margir sem geta.
Yerkleg garðyrkja er einnig víða kend um Danmörku,
og þykir bera góða ávexti. Slík kensia er og byrjuð hér
í Gróðrarstöðinni og vei ður framhaldið. Þörf hennar er einn-
ig auðsæ, bæði til þess að útbreiða kunnáttu í garðyrkju,
kenna réttar aðferðir við hana og svo til að auka áhug-
ann í þeirri grein.
í Noregi er kenslan á flestum búnaðarskólunum bæði
bókleg og veikleg eða svipuð því, sem hér er. En þetta
er þó í þann veginn að breytast; bóklega námið er ver-
ið að auka í skóiunum og meiri aðskilnaður á því verk-
lega og bóklega en áður var. — Á vetrarskólanum í Krist-