Búnaðarrit - 01.01.1904, Side 47
43
ber það vott um, nð eigi heflr verið vanþörf á slíkri fræðslu,
■sem þar er veitt.
Auk þeirrar verklegu fræðslu, sem mönnum er geflnn
kostur á við þessa skóla eða stofnanir, eru menn iátnir
ferðast um, einkum að vetrinum til þess að kenna og
leiðbeina í ýmsu, er að búnaði lýrur. Þessi fræðsla
er tvennskonar. Menn, sem til þess eru hæflr, fara um
að vetrinum, koma á flesta bæi áþvísvæði,og leiðbeina,
sérstaklega í öllum fjósverkum, hirðing og meðferð naut-
penings. Þessar ferðir nefnast fjósskoðanir. — í sambandi
við þessar fjósskoðanir er þeim fjósamönnum og fjósakon-
um, sem hirða kýr betur en aðrir, veitt verðlaun. — Yerð-
launin eru oftast verðmætir hlutir, svo sem bók, silfurskeið-
ar o. s. frv.
í öði'u iagi fara menn um, sem leiðbeina í fleiru en
einu, leiðbeina í fónaðarhirðingu, meðferð áburðar og ýmsu
öðru er að búskap lýtur. Þeir nefnast umferðakennarar,
■og eru ráðnir og launaðir af sveitabúuaðarfeiögunum og
amtsbúnaðarfélögum í sameiningu.
Það er talið vist, að þessi umferðarfræðsia hafl gert
-og geri mikið gagn. Hún var einnig áður almenn, i Dan-
mörku, en er nú breytt; helzt þó enn við á stöku stað þar.
í Svíþjóð eru tvennskonar búnaðarskólar, þeir sem
veita að eins bóklegafræðslu (Landtmannaskólar), og aðrir,
þar sem kenslan er bæði verkleg og bókleg (Landtbruks-
skóiar). Verkleg jarðyrkja er að öðru leyti kend af ein-
stökum mönnum. Meðferð mjólkur er kend á mjólkur-
búum, sem til þess eru valin og njóta þau styrks af al-
manna fé. Þessar verklegu mjólkurkenslu-stofuanir eru
24 alls og námstíminn 2 ár. Til þeirra er veitt af lands-
Sjóði 11,000 kr. árlega. — Nemendurnir dvelja sitt árið á
hvorum stað, og taka þátt í öllum störfum mjólkurbús-
ins, læra smjörgerð og osta. Seinna árið njóta nernend-
urnir bóklegrar fræðslu ásamt því verklega. ,
Bændum til sveita er veitt leiðbeiniug og fræðsla á