Búnaðarrit - 01.01.1904, Page 49
45
á frekari raentun. Yeturinn 1892—’93, voru þessir
skólar 725 alls.
4. Sórskólarnir, á þeim er veitt verkleg fræðsia eða til-
sögn í engjarækt og framræsiu, hirðing á hestum og
járningu, almennri jarðrækt o. s. frv.
5. Mjólkurskólar eru þar margir, og er námstíminn 1 — 2
ár. Kenslan er bæði bókleg og verkleg. En auk þeirra
er og önnur kensla í meðferð mjóikur, er varir 4—8
vikur; sú kensla er mest verkleg.
Umferða-búnaðarfræðsla er þar og almenn. Þeir sem
hana hafa á hendi, fara heim á sem flest heimili og leið-
beina í ýmsu, halda fyrirlestra o. s. frv.
í Sviss og Austurríki er búnaðarskólafyrirkomulagið
svipað og á Þýzkalandi. Þar er einnig lögð mikii áherzla
á, að veita bændum fiæðslu og leiðbeiningar; það gera
umferðakennarar. Árið 1895 voru þeir 327 alls í Austur-
ríki.
Á Frakklandi er landbúnaðarfræðslan, bæði hin verk-
]ega og bóklega í mjög góðu lagi. Hinni verklegu kenslu
er þar líkt háttað og í JJanmörku. Piltum er komið fyrir
á fyrirmyndarheimilum, og eru þeir látnir taka þátt í öll-
um algengum störfum heimilisins, bæðí í fónaðarhirðing,
jarðyrkju o. s. frv. ICaup er þeim eigi g údið, en í þess stað
njóta þeir bóklegrar fræðslu eða tilsagnar á hverjum degi.
Námstíminn er oftast 2 ár, og að honum loknum fá
þeir vitnisburð, og verðlaun ef þeir hafa staðið sig vel eða
ágætlega.
Þeir, sem halda piltana, fá vissa upphæð, fast að 200
kr. fyrir hvern pilt; sá styrkur greiðist af landssjóði.
Umgangskensla í búfræði er þar tvenskonar.
1. Menn ferðast um, sem kostaðir eru af landssjóði; þeir
koma á ílest heimili og leiðbeina í ölium greinum bú-
skaparins, eftir því sem þeim er unt.
2. Umgangskennarar, í svipuðum stýl og vorir barna-um-
gangskennarar. Þessir menn fræða ungdóminn í ýms-