Búnaðarrit - 01.01.1904, Side 54
50
að fá styrk til námsferðar um Danmörku og Noreg.— Eg
lagði af stað í ferð þessa 10. febrúar og var í henni 114
daga; kom aftur 3. júní.
Tilgangur utanfarar minnar var fyrst og fremst sá,
að kynnast smjörsýningum í Danmörku og meðfei ð smjörs-
ins yfir höfuð. Eg var þar á 6 sýningum, stærri og minni,
er haidnar voru á Jótiandi og í Óðiusvé.'
Á Jótlandi og Fjóni heimsótti eg nokkur mjólkurbú
eftir tilvísun prófessors Böggilds. og dvaidi tíðast 1--3 daga
á hverju þeirra.
Á Ludelund lærði eg að mjalta og tók þátt í mjalta-
kenslunni 2 námsskeið.
Þá skoðaði eg og kynti mér heiztu og stærstu vatns-
veitinga fyrirtækin, sem gjörð hafa verið síðustu árin á Jót-
landi og í Slésvík, og þau, sem nú er verið að framkvæma.
Hafði eg bæði gagn og gaman af því, enda naut egleið-
sagnar ingeniörs Winge, ráðunauts Heiðafélagsins og fleiri
góðra manna.
Til Noiegs fór eg 1. maí, og ferðaðist þar um í tæp-
ar 3 vikur. Tilgangur minn með ferðinni þangað var sá,
að fá upplýsingar um jarðræktina á Jaöri eða í Stavang-
er-amti, og auk þess heimsótti eg þar 8 mjólkurbú og
mjólkurskólann í 0jedad pr. Arendal. — Skóii þessi var
stofnaður 1898, og er hann einungis íyrir stúikur. Náms-
skeiðið er l1/^ ár, og kenslan bæði bókleg og verldeg, Nem-
endurnir fá 21 kr. í styrk um mánuðinn, og er það sú
meðgjöf, er þeir þurfa að greiða með sér.
Geta má og þess, að eg heimsótti allar hinar helztu
verksmiðjur í Danmörku og Noregi, sem búa tii iandbún-
aðarverkfæi i, stærri og minni, og áhöld til mjókuibúa.
Þar á meðal kom eg á vagnaverksmiðju í hideraug í
Noregi, sem mér leizt vel á. Þar eru búnir tii fjórhjóh ð-
ir vagnar og kerrur. - Vagn með 4 hjólum, sem ber 1200
pd., kostarþar 175 kr., og kerrur 00 — 70 kr. En lakast
er hvað flutningskostnaðurinn á þessum áhöldum er mik-
ill frá Noregi og hingað. Eg læt þessa sérstaldega getið,