Búnaðarrit - 01.01.1904, Page 58
54
9. A Grhrtsstöðum í Mýrasýsln mældi eg og gerði á-
ællun liin hvað kosta mundi girðing um l.únið og
þurkun á því. Kostnaður um 725 kr.
10. Kriuglumýri, í landi Rykjavíkurbæjar, mældi eg og
gerði áætlun \ m kostnað við að girða hana og þurka.
Stærð hennar er um 170 dagsl. og áætlaður kostn-
aður við þurkun og girðingu rúm 3000 kr.
Auk þessa hef eg gert ýmsar minni hallamæling-
ar, sagt fyrir um íhleðslu i ár, þar á meðal i Hörðudalsá
í Dalasýsiu. Enn fremur mælt fyrir vatnsleiðslu, til not-
kunar sem hreyfiafl við væntanleg rjómabú í Kjósinni,
við Þverá í Dalasýslu, við Ölfusárbrú og Hróarsholtslæk
í Árnessýslu.
Fundi hef eg haldið til að ræða um rjómabússtofn-
_ anir og fleira.
1. Að Sauðafelli í Dölum, 6. julí, var rætt um stofnun
rjómabús, kynbætur o. fl. Að því er rjómabúið snerti,
var engin ákvöiðun tekin, en flestir voru því hlynt-
ir. Gæti þar verið stórt og mikið rjómabú við Þverá
eða brúna á Haukadalsá. í því gætu verið ílestir
Miðdæiir, meiri hluti Hörðadals, og neðstu bæirnirí
Haukadal og Laxárdal. Sennilega verður af stofnun
biisins, annaðhvort næsta haust eða þá ekki fyr en
vorið 1005.
2. Að Bre/ðabólsstað á Skógarströnd, 4. júlí. Rætt um
túngirðingar, gaddavír o. fl.
3. Að Holt/i undir Eyjafjöllum, 18. sept. Talað um rjóma-
bússtofnun undir Út-Eyjafjöllum, en framkvæmd frest-
að að því sinni.
4. Að Teiyi í Fljótshh'ð, 25. sept. Rætt um rjómabússtofn-
un, og samþykt að setja það á fót næsta vor.
5. Að Stóru-Borg í Grímsnesi, 29. sept. Rætt um rjóma-
bússtofnun og samþykt. Þar var og talað um ýmis-
legt fleira, meðal annars girðingalögin frá síðasta
þingi og túngirðingar.
6. Að Hrauugerði í Árnessýslu, 13. sept. Rætt var