Búnaðarrit - 01.01.1904, Page 59
55
um rjómnbússtofnun við Hróarsholtslæk, og samþykt
að setja búið á fót.
7. Að Selfossi, 6. október. Rætt um í jómabú og sam-
þykt að stofna það og hafa það utan við Ölfusárbrú.
8. Að LágafelH i Mosfellssveit., 5. des. Rætt um kyn-
bótafólag fyrir sveitina, um rjómabússtofnuu eða mólk-
ursölu og fleira.
Auk þessa var eg á fundi við Þjórsárhrú 12. sept.,
•er boðað hafði verið til af Búnaðarfélagi íslands. Á fundi,
sem haldinn var í Mýrdal, var rætt, um rjómabúið við
Deildá og kynbótafólagið fyrir sveitina.
Ejómalm eru nú 15 alls á landinu, 8 í Árnessýslu,
1 i Rangárvallasýslu, 1 Kjósarsýslu, 1 í Borgarfirði, 1 í
Skaptafellssýslu, 1 í Hiinavatnssýsiu og 2 í Skagafirði.
Ákveðið er, að setja á fót rjómabú næsta vor: 2 í
Rangárvallasýslu, 3 í Árnessýslu, og 1 í Kjósarsýslu. —
Hreyfing í þessa átt er og víðar, bæði í Dalasýslu og
í Borgarfirði, og eftir þvi, sem mér hefur verið skýrt frá,
þá mun einnig í ráði að stofna 1 rjómabú í Húnavatns-
sýslu. Það sem nú er einkum til fyrirstöðu því að miklu
fleiri rjómabú verði stofnuð í vor en þau, er nefnd hafa
verið, er skortur á hæfum búst.ýrum. Á mjólkurskólanum
•eru 10 stúlkur nú í vetur; 2 bættust við, er skólinn var flutt-
ur til Reykjavikur, og eru þær þegar aliar ráðnar til að
starfa á ijómabúum, er til þess dærnast færar.
Bréf og fyrirspurnir um eitt og annað viðvíkjandi bún-
aði hafa mór borist með meira móti, og hefi eg í tilefni
af því skrifað þetta ár um 200 bréf. Flest bréfin hafa ver-
ið fyrirspurnir snertandi rjómabússtofnanir, girðingar, út-
vegun áhalda o. s. frv.
Auk þessa hefi eg skrifað nokkrar ritgerðir í blöð og
Búnaðarritið.
Loks skal þess getið, að eg hefi í vetur kent mjaltir
nemendum Iíússtjórnarskólans, 8 stúlkum alls.