Búnaðarrit - 01.01.1904, Page 61
67
bygður á sama hátt og skálinn við Rauðalæk, og var engu
síðri að smíði og útbúnaði. Bústýra: Aðalbjörg Stefáns-
dóttir frá Möðrudal. Framnesbúið á Skeiðum var ný-
tekið til starfa, þegar eg kom þar. Bústýra: Guðný
Jónsdóttir. Illuthafar búsins eru 31, og hið dag lejra
smjörmagn 130 pd. Næsta nýja mjólkurbúið, er eg kom
á, var búið á Torfastöðum í Biskupstungum, og sem
einnig var nýtekið til starfa. Biistýra: Ingibjörg Páisdótt-
ir. Hluthafar eru 23 og hið daglega smjörmagn 140 pd.
01] þessi mjólkurbú nota vatn fyrir hreyfiafl. — Öll eldri
mjólkurbúin, er eg kom á, höfðu fært út kvían.ar. Þann-
ig hafði Rauðalækjarbúið nú 44 hluthafa í stað 24 í
fyrra. og framleiddi 370 pd. af smjöri á dag, þegar mest
var, í staðinn fyrir 140 í fyrra.
í Borgarfiiði kom °g á nýja búið í Bæjarsveitinni,
sem HelgaBjörnsdóttir stjórnaði. Hluthafar eru 18 og smjör-
magnið ca. 100 pd. á dag. Þar er notað vatnsafl. Úr
Borgarfirðinum fór eg norður í Vatnsdal og kom á nýja
búið á Kornsá. Skálinn var byggður í sumar sem leið;
þar er og notað vatnsafl. Ahuginn á smjörgerð er þar enn
mjög lítill, að fráskildum þeim 9 mönnum, sem sett hafa
búið á stofn. Búið framleiðir 60—70 pd. af smjöri á dag.
Bústýra: Elísabet Björnsdóttir.
Mjólkurbúin í Skagafirði heimsótti eg ekki, bæði af
því, að tíminn var orðinn naumur og svo af því að eng-
in ný bú höfðu komið þar upp.
Eg skal ekki verða langorður um rjómann á mjölk-
urbúunum, en láta nægja, að vísa til greinar, er eg skrif-
aði í haust í „ísafold" um þetta efni. Til þess þó að minna
á, hvað nauðsynlegt það er, að vanda meðferð rjómans,
sem bezt, skal eg hér með nokkrum tölum skýra frá, hjá
hvað mörgum af h.uthöfum búanna rjóminn var athuga
verður:
L