Búnaðarrit - 01.01.1904, Page 64
60
bezta. Æskilegast væri jiví, að hluthafar hvers bús, gætu
haldið fuud, þegar eg er þar á ferðinni.
Eg skal hér tilnefna tvær bústýrur, þær Guðrúnu Jóns-
dóttur í Birtingaholti og Margrétu Sigurðardóttur i Arn-
arbæli, ekki af því að smjörið hjá þeim væri svo sérlega
gott, heldur.' af því hvað sýran var í góðu lagi. Vonandi
reyna hinar bústýrurnar að keppa við þær í því efni.
Auk þess seni eg kom á öll rjómabúin á Suðurlandi,
heimsótti eg marga góða bændur, og kom smjörgerðin þá
til umræðu, og vona eg, að sá áhugi, sem er á þessu vel-
ferðarmáli haldist framvegis.
1. okcóber átti 8. mjólkurskeiðið að byrja, en varð
að frestast vegna þess, að mjólkurskálinn brann aðfara-
nóttina 6. s. m. Mjólkurskólinn var svo liúsnæðislaus til
11. okt., að ákveðið var, að flytja hann hingað til Reykja-
víkur til bráðabyrgðar, og hefir skólinn nú fremur gott hús-
næði í Aðalstræti 18. Kenslan byrjaði svo 19. október með
8 námsmeyjum: Guðrúnu Jónsdóttur úr Borgarfirði, El-
ísabetu Guðmundsdóttur úr Strandasýslu, Bjarnrúnu Jóns-
dóttur, Kristjönu Pálsdóttur og Sigurlaugu Haildórsdóttur
úr Þingeyjarsýslu, Ingunni Stefánsdóttur og Jófríði Stef-
ánsdóttur úr Norður-Múlasýslu og Önnu Sipurðardóttur úr
Suður-Múlasýslu. Seinna komu tvær: Aðaibjörg Stefáns-
dóttir og Kristín Antoníusardóttir úr Suður-Múlasýslu.
Það var þó að eins bóklega kenslan og mjaltaæfing-
ar, sem gátu byrjað 19. okt. Mjaltaæflngar íóru fram hjá
formanni félagsins í Laufási. Hin verklega mjólkurkensla
byrjaði fyrst 5. nóvember, enda á kensluskeiðið að standa
yfir til 1. maí í vor. Vor-kensluskeiðið fellur burtiþetta
sinn.