Búnaðarrit - 01.01.1904, Page 65
61
Skýrsla
frá
Gufljóni GuÖiiiiiiKlMsyni.
Störf mín, seinastliðið ár, hafa í aðalatriðunum verið
]iau sömu og árið á undan. Á ferðalögum, í þarfir Bún-
aðarfólagsins, hefi eg verið 74 daga alls. 21. marz fór eg
upp í Kjós á búnaðarfélagsfund, sem haldinn var á Reyni-
völlum 23. s. m. Á þeim fundi var samþykt að setja á
stofn nautgriparæktunarfólag fyrir Kjósarhrepp og gengu
14 bændur í það strax á fundinum. Á fundinn varkom-
ið með nokkra graðfola, og var einn þeirra valinn til stóð-
hests fyrir hreppinn. Jafnframt var ákveðið að kaupa ann-
an stóðhest —af reiðhestakyni — norðan úr Skagafirði. í
þessari ferð var eg viku, og skoðaði búpening hér og hvar
á ieiðinni.
Áttunda júní fór eg upp í Borgarfjörð á sýninguna,
sem haldin var í Deildartungu 13. s. m., og þaðan aust-
ur í Hreppa á sýninguna, er haldin var að Sólheimum
þann 18. Frá báðum þessum sýningum var skýrt í ísafold.
3. júlí fór eg með „Reykjavíkinni" upp í Borgarnes
og þaðan vestur í Dali á fund, sem haldinn var fyrir Suð-
urhreppa Dalasýslu, að Sauðafelli 5. s. m. Á fundinum var
meðal annars rætt um stofnun nautgriparæktunarfólags
fyrir 3 syðstu hreppa sýslunnar, og var kosin framkvæmd-
arnefnd í það mál: Björn sýslum. Bjarnaison, Ólafur bóndi
Finnsson á Fellsenda og Iíildiþór Hjálmtýsson, bóndi á
Harrastöðum. Samþykt var að halda sýningu að vori fyr-
ir suðurhluta Dalasýslu, og var áðurnefudum 3 mönnum
falið, að sjá um framkvæmdirnar. Rætt var um kynbæt-
ur hrossa og var fundurinn samþykkur samþykt sýslufund-
ar um, að sýslunni yrði skift í hæfilega mörg kynbóta-
svæði, og að hvert þeirra hofði 2 eða 3 stóðhesta, 1 af
reiðhestakyni og 1 eða 2 af áburðarhestakyni. Ýms fleiri