Búnaðarrit - 01.01.1904, Side 69
65
Rálfastrond í Mývatnssveit og Helgi Kr. Jónsson frá Lága-
felli í Mosfellssveit. Kenslutíminn var 6 vikur—frá 14.
maí til 24. júní. Kaup fengu námspiltar þessir ekkert,
en fæði, húsnæði og aila aðhlynningu ókeypis, en fyrir
ómak mitt við kensluna greiddi Bfl. Tsl. mór kr. 40,00 fyr-
ir hvern pilt’ yfir þennan tiltekna tíma.
Aðalstarf námspiltanna, var að fara með plóg og hesta,
en auk pess tóku þeir þátt í öðrum undirbúningi sáðreita
og sáningu í þá, við önnur störf fengust þeir ekki.
Plæging var æfð á óbrotnu landi, bæði stórþýfi og
greiðfæru, dálítið á alveg siéttu, þverplæging ááður plægðu,
sem legið hafði frá því árinu áður; ennfremur fengu pilt-
ar æfingu í að plægja niður kartöflur á rúml. dagsiáttu.
Önnur störf, sem piltar fengu æfingu í, voru: sán-
ing á höfrum og byggi í nýbrotið land, og áður unnið,
sáning á rófnafræi með sáðvél og sáning á grasfræi lít-
ið eitt.
Vinnutimi var 10 stundir á dag, frá kl. 7 á morgn-
ana til kl. 7 að lcveldi, 2 st. ganga frá til máltíða.
Auk þess, sem eg sem oftast var með piltum við vinnu
þeirra og veitti þeim tilsögn í störfunum um leið og þau
voru unnin. hafði eg ákveðið, að verja 1 stund á hverju
kvöldi að aflokinni vinnu, til munnlegrar kenslu. Þessari
reglu varð að vísu ekki alveg fylgt, því bæði koin það fyr-
ir, að eg var að heiman eða gat ekki sint því, en það,
sem úr félJ, var aftur bætt upp, því sjaldan mun tíminn
hafa verið styttri en 3 st. þegar ekki féll úr.
Munnlega kenslan var einkum fólgin í því, að eg skýrði
fyrir piltum þessi atriði:
1. Byggingu plógsins með tilliti til starfs hans.
Ýmsar tegundir plóga.
Herfin og ýms önnur auðnotuð verkfæri.
2. Hinar helztu aðferðir, er koma til greina við ýmis-
konar plægingar.
3. Helztu undirstöðuatriði jarðvegsfræðinnar, einkum
ö