Búnaðarrit - 01.01.1904, Síða 72
68
um. Gera skal forina svo vel laghelda, sem frekast er unt
kostnaðnr vegna. Veggirnir skulu standa c. */2 fet upp úr
jörð, til þess að síður renni úr forinni iögui inn eða i hana
leysingarvatn. Hleri skal vera yfir forinni, vatnsheldur og
gripheldur. Salerni má hafa yfir öðrum enda forarinnar.
1 eldhúsi skal hafa skolpþró (Vadsk), en það er lítil
bytta steypt úr járni og er stútur á botninum, en í stút-
gatinu er koparflaga með smágötum, til þess að föst ó
hreinindi fari ekki í ræsið og stýfli það. Neðan á botn-
stút byttunnar á að koma vatnslás, en það er hnóbogin
pípa, gengur bugðan niður, stendur því ávalt vatníbugð-
unni og ver því, að loft (ódaunn) komist upp í skolpþróna
úr ræsinu. Ræsið skal ganga frá vatnslásnum niður í jörð
og neðanjarðar (3 — 4 fet í jörðu niðri) út í forina. Ræs-
ið verður að vera lagheit; leirrör eru ágæt.
Skoipþró.........kostar kr. 6,00.
Vatnslás............. — — 3,50.
10 álnar löng leirrör . — —15,00.
Uppsetning .... — c. — 5,50.
samtals 30,00.
Þessi umbúnaður er stórkostleg þrifnaðarbót, en þrifn-
aður er fegursta prýði og bezta sóttvörn á hverju heimili.
Fyrir tilmæli míti hefir verkfræðingur KnudZimsen
í Reykjavík lofað að útvega þeim sem vilja þessi áhöld,
sem hér hefir verið lýst, og iáta í tó leiðbeiningu um upp-
setningu á þeim.
Eg hef ekki enn séð nema eina örk — próförk —
af framannefndri ritgerð hr. Vigfúsar Guðmundssonar, en
hún ber þess ijósan vott, að hann er skýr maður og vel
að sér. Þess vegna má vænta þess, að margur muni
fara að ráðum hans og þess vegna get eg ekki stilt mig
um að vekja athygli á því, að hann hefir vafalaust ekki
rétt fyrir sér, þar sem hartn segir, að safngryfjur inni í
fjósum muni ekki spilla ioftinu. Þær liljóta ávalt að spilla