Búnaðarrit - 01.01.1904, Blaðsíða 75
n
fnest 30,73'kr. Á báðum þeim stöðum, sem mest og minst
kostaði að plægja, var jörðin heil (grasrót ekki skorin of-
an af). — Mest plægði hann á dag (í 10 tima) 823 □
faðma og minst 240 □ faðma.
Búnaðarfélag Holtamanna réð til sín Dag búfræðing
Brynjólfsson og plægði hann hjá fólaginu tvo sumarmán-
uðina, ágúst og september, rúmlega 14^/a dagsláttu. Kaup
var um samið fyrir fram, 3 aura á □ faðminn, auk
fæðis tveggja manna. Alt hið plægða var óbrotinn og
beill jarðvegur. Mert var plægt hjá hómópata, Ólafi ís-
leifssyni við Þjórsárbrú, 5 dagsl.
BúnaðarféJag Laxárdalshrepgs lét plægja rúmar 7
dagsl. Meiri hlutinn af því var tvíplægt, gerði það Jóhann-
es búfræðingur Guðn.undsson, tók hann 4 aura fyrir að
tviplægja og herfa □ faðminn í ofanafristu, en nú býðst
hann til að gera það fyrir 3 aura næsta sumar.
Til tryggingar því, að þessar plægingar verði að sem
beztum notum, hefur Búnaðarfélagið skrifað ofannefndum
félögum og æskt þess, að þeir, sem ekki hafa þakið flög
sín, leituðu leiðbeininga hjá ráðunautum félagsins umþað,
hvernig heizt ætti að fara með þau eftirleiðis.
Á síðasta búnaðarþingi var samþykt, að veita mætti
á næstu tveimur árum, þar sem þess sérstaklega þarf með,
nokkra uppörfun til búnaðarfólaga, sem koma verulegri
plægingu á hjá sér. Var þessi ályktun gerð út af tillögu
búnaðarþingsfulltúa, séra Einars Þórðarsonar, um, að félag-
ið veitti styrk til plæginga í Fljótsdalshéraði.
Jarðrœldarfélag Reylcjavílcur lót plægja mikið síðast-
liðið sumar, en ekki var því veittur styrkur af Búnaðar-
fólaginu. Plægingamennirnir voru þeir Árni búfræðingur
Thorlacius, Helgi Kristinn Jónsson, og Julius Jensen. Plægð-
ar voru 51 dagsl.